Viðskipti innlent

Óvíst hvort staða framkvæmdastjóra SI verði auglýst

Haraldur Guðmundsson skrifar
Svana Helen Björnsdóttir, formaður Samtaka iðnaðarins, sagði í samtali við Fréttastofu RÚV í gær að stjórn samtakanna muni funda um málið í dag.
Svana Helen Björnsdóttir, formaður Samtaka iðnaðarins, sagði í samtali við Fréttastofu RÚV í gær að stjórn samtakanna muni funda um málið í dag.
Svana Helen Björnsdóttir, formaður Samtaka iðnaðarins, segir óvíst hvort staða framkvæmdastjóra samtakanna verði auglýst. Orri Hauksson, sem gegndi stöðunni síðastliðin þrjú ár, sagði starfi sínu lausu á föstudag þegar tilkynnt var að hann hefði verið ráðinn forstjóri fjarskiptafélagsins Skipta.

Svana sagði í samtali við Fréttastofu RÚV í gær að stjórn samtakanna muni funda um málið í dag.

„Það hefur ekkert verið ákveðið hvort við auglýsum stöðuna eða ekki. Við teljum mjög mikilvægt að þetta sé gagnsætt ferli og þetta sé rétt gert. Þess vegna fer ekkert í gang fyrr en stjórnin hittist á morgun,“ sagði Svana Helen í viðtali á RÚV.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×