Hækkun á verði íbúða í fjölbýli Haraldur Guðmundsson skrifar 21. október 2013 12:03 Hækkunina má að sögn Íslandsbanka rekja til 2,5 prósenta hækkunar á íbúðaverði í fjölbýli. Mynd/Vilhelm.
Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 0,9 prósent í september síðastliðnum miðað við fyrri mánuð. Hækkunina í síðasta mánuði má að öllu leyti rekja til 2,5 prósenta hækkunar á íbúðaverði í fjölbýli. Í september í fyrra hafði íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu hækkað um 0,2 prósent frá fyrri mánuði. Frá þessu er greint í Morgunkorni Íslandsbanka. Þar segir að svo mikil hækkun á verði íbúða í fjölbýli hafi ekki orðið á milli mánaða síðan í maí árið 2011. „Allt önnur þróun varð á verði sérbýla á sama tíma, sem lækkuðu á milli mánaða um 2,5 prósent. Þetta er í fyrsta sinn síðan í byrjun árs sem verð sérbýla lækkar á milli mánaða, og í raun hefur lækkunin ekki orðið eins mikil og nú síðan um mitt árið 2010. Þó ber hér að hafa í huga að talsverðar sveiflur eru í mælingum á milli mánaða og betra að horfa í þróunina til lengri tíma þegar greina á hvert markaðurinn er að fara. Þetta má sjá tölum sem Þjóðskrá Íslands tekur saman um vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu, og birti undir lok síðustu viku,“ segir í Morgunkorninu.
Mest lesið Gleymdi að skrá sig úr stæðinu og því rukkuð um 48 þúsund Neytendur Selja Lagarfoss með tæpleg hálfs milljarðs tapi Viðskipti innlent Ójafnrétti að konur þurfi að ganga á veikindarétt vegna barneigna Viðskipti innlent Hótar Kanadamönnum hærri tollgjöldum Viðskipti erlent Íbúðum í byggingu fækkar Viðskipti innlent Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér Viðskipti innlent Um forvitna yfirmanninn Atvinnulíf Eiginkona stjórnarmanns keypti óvart í bankanum Viðskipti innlent Fyrirtæki í vopnaframleiðslu eru á rauðum lista Viðskipti innlent Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íbúðum í byggingu fækkar Selja Lagarfoss með tæpleg hálfs milljarðs tapi Ójafnrétti að konur þurfi að ganga á veikindarétt vegna barneigna Fyrirtæki í vopnaframleiðslu eru á rauðum lista Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér Eiginkona stjórnarmanns keypti óvart í bankanum Raunverð íbúða hefur þrefaldast frá aldamótum Atli Óskar ráðinn rekstrarstjóri framleiðslu Engin U-beygja hjá Play Veitingamenn verulega óánægðir með eftirlitið Hindranir í vegi þess að lífeyrissjóðirnir taki þátt í hernaðaruppbyggingu Evrópu Spá umtalsverðum samdrætti í byggingu nýrra íbúða Falsaði fleiri bréf Veltir því upp hvort eigendum hafi verið refsað fyrir að tjá sig Hætta við yfirtökuna Harpa og Linda ráðnar forstöðumenn Stærsti samruninn í áraraðir á borð Samkeppniseftirlitsins Sylvía Kristín ráðin forstjóri Nova Íslenskur pítsastaður í Kína: „Það verður skrítnara og skrítnara að segja frá þessu“ Farþegum til landsins fjölgaði um tuttugu prósent Kvika hafi grætt töluvert á því að hafna upphaflegum tilboðum „Sem betur fer eru aðrir fiskar í sjónum“ Arion og Kvika í samrunaviðræður Eyþór hættur sem framkvæmdastjóri Hopp Svona munu stækkuð Skógarböð og hótel líta út Skrautleg saga laganna hans Bubba Sætta sig ekki við höfnun Kviku Hagnaðist um tæpar sjötíu milljónir króna Lofar bongóblíðu við langþráð langborð Minnstu sparisjóðirnir sameinast Sjá meira