Stærsti geimbardagi sögunnar í Eve-Online Kristján Hjálmarsson skrifar 29. júlí 2013 12:30 Hver punktur á myndinni táknar eitt geimskip sem er stjórnað af einum spilara. Eins og sjá má tóku þúsundur spilara þátt í bardaganum. Rauðir og appelsínugulu punktarnir eru óvinir þess sem tók skjámyndina. Hinir eru vinveittir.
Hátt í þrjú þúsund geimskip skemmdust eða var eytt í stærsta geimbardaga sögunnar sem fram fór í Eve-Online tölvuleiknum í nótt. Þúsundir spilara börðust á um fjögur þúsund geimskipum með afdrifaríkum afleiðingum. Bardaginn hófst þegar í brýnu sló á milli tveggja stórra bandalaga, CFC og TEST Alliance Please Ignore, en bæði vildu slá eign sinni á svæðið sem kallað er Fountain. Hönnuðir Eve-online höfðu nýlega komið fyrir verðmætum tunglum sem bæði bandalög vildu ná á sitt vald.Bardaginn vekur mikla athygli "Þó ég sé ekki búinn að kanna allar forsendur held ég að það sé alveg rétt að kalla þetta einn stærsta bardaga í tölvuleikjasögunni," segir Eldar Ástþórsson, starfsmaður hjá CCP. "Þarna voru þúsundir leikmanna að berjast á nákvæmlega sama tíma. Það er mjög athyglisvert að sjá hvað þessi bardagi vekur mikla athygli. Bandaríkin eru nú að vakna til lífsins eftir bardagann sem fór fram í gærkvöldi og við sjáum mikinn áhuga þaðan, bæði frá fjölmiðlum og á netinu. Svo voru þúsundir manna sem fylgdust með bardaganum í beinni útsendingu." Meðal þeirra sem fjallað hafa um málið er Huffington Post.Þúsundir spilara komu saman í Eve-Online leiknum í nótt.Efnahagslegar og pólitískar afleiðingar Eldar segir álagið á netþjóna CCP vissulega vera mikið þegar svona stór bardagi fer fram. "En það er ein af sérstöðu Eve-Online, það er hvað margir geta spilað á sama tíma. Þetta er eitt af því sem við stærum okkur af - að vera með leik sem atburðir sem þessir eru mögulegir. Þegar þúsundir manna safnast saman á sama tíma í leiknum þurfa öll tæknileg atriði að vera í lagi," segir Eldar. "Það er gaman að sjá hvað atburðir sem þessir hafa gríðarlegar afleiðingar, bæði efnahagslegar og pólitískar. Þetta er vissulega gervibardagi en er raunverulegur að ansi mörgu leyti og hefur ýmsar afdrifaríkar afleiðingar í för með sér."
Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Greiðsluáskorun Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira