Lækka gjaldskrá um 40% Óli Kristján Ármannsson skrifar 31. október 2013 07:00 Upprunaábyrgðir orku geta gengið kaupum og sölum, til dæmis vegna kvaða um að fyrirtæki uppfylli grænan kvóta. Fréttablaðið/GVA
Gjaldskrá Landsnets vegna upprunaábyrgðar á raforku hefur verið lækkuð um tæp 40 prósent. Fram kemur í tilkynningu að tekjur fyrirtækisins af útgáfu upprunaskírteinanna hafi reynst umtalsvert meiri en gert var ráð fyrir þegar útgáfa þeirra hófst fyrir tæpum tveimur árum. Gjald fyrir hvert útgefið skírteini hefur verið lækkað úr sjö krónum fyrir megavattsstundina í 4,3 krónur. Upprunaábyrgð er staðfesting á að raforka sé framleidd með endurnýjanlegum orkugjöfum, ekki orkugjöfum úr jarðefnaeldsneyti. „Upprunaábyrgðir geta gengið kaupum og sölum og getur hvatinn fyrir slíkt verið margvíslegur, allt frá lagalegri skyldu að uppfylla ákveðinn grænan kvóta til þess að vilja sýna út á við að viðkomandi ýti undir nýtingu á endurnýjanlegum orkugjöfum við framleiðslu raforku,“ segir í tilkynningu Landsnets. „Nú, þegar Landsnet hefur öðlast tæplega tveggja ára reynslu af þessari útgáfu, er ljóst að að kostnaður vegna útgáfu skírteinanna og umsjónar hefur verið lægri en áætlanir gerðu ráð fyrir, auk þess sem sölumagnið hefur verið umtalsvert meira en væntingar voru um.“
Mest lesið Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent Arion banki hækkar vexti Viðskipti innlent Húsnæði Kjötborgar til sölu Viðskipti innlent Enn meiri breytingar: Yfirmenn klónaðir með gervigreind Atvinnulíf Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Viðskipti innlent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Viðskipti erlent Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Viðskipti innlent Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Viðskipti innlent Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Viðskipti innlent Sigrún ráðin aðalbókari Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli Sjá meira
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent