Opna forritunarsetur í Bandaríkjunum snemma á næsta ári Óli Kristján Ármannsson skrifar 27. nóvember 2013 07:00 Ungir forritarar. Skólar og sveitarfélög geta á www.forritarar.is sótt um styrki úr sjóðinum Forritarar framtíðarinnar. Mynd/Reiknistofa bankanna
Stefnt er að því að opna reKode setur í Redmond í Seattle í Bandaríkjunum í lok febrúar eða byrjun mars, segir Rakel Sölvadóttir stofnandi sprotafyrirtækisins Skema og framkvæmdastjóri reKode vestra.ReKode er útrás hugmynda- og aðferðafræði Skema, sem sérhæfir sig í kennslu og rannsóknum, með sálfræði, kennslufræði og tölvunarfræði að leiðarsljósi. Skema hefur vakið heimsathygli og var nýverið valið, af tímaritinu Forbes, sem eitt af tíu sprotafyrirtækjum til að fylgjast með á þessu ári. Rakel segir að þessa dagana sé verið að ganga frá leigusamningi fyrir húsnæði undir höfuðstöðvar og reKode setur. Að mörgu sé að hyggja þegar koma á sér fyrir og stofna fyrirtæki í nýju landi. Þannig þurfi maður í Bandaríkjunum að búa sér til viðskiptasögu áður en maður geti svo mikið sem keypt sér bíl.Ólína Helga Sverrisdóttir, 13 ára dóttir Rakelar Sölvadóttur, var nýverið í öðru sæti í vali á Tæknistelpu ársins í Evrópu 2013 (Digital Girl of the Year Award).Mynd/Rakel SölvadóttirHún fór utan með fjölskylduna í haust. „Við erum hér í bakgarðinum Microsoft,“ segir hún kankvís. Vandfundinn sé betri staður fyrir höfuðstöðvar fyrirtækisins. Á döfinn sé síðan að opna viðlíka setur í San Fransisco og í Las Vegas. Viðtökur vestrtra hafi verið aftar góðar, en fyrsta námskeiðið var haldið síðasta sunnudag, „svona til að fá umsagnir og viðbrögð“ segir Rakel. Þá segir hún að óneitanlega hafi geta þrettán ára dóttur hennar, Ólínu Helgu Sverrisdóttur, vakið nokkra athygli ytra. „Hún er náttúrlega fyrsta tilraunadýrið og gangandi dæmi um ágæti nálgunar Skema,“ segir hún. Ólína varð í mánuðinum í öðru sæti í valinu á Tæknistelpu ársins í Evrópu. Þá vann hún í fyrra forritunarkeppni á vegum Bandarísku alríkislögreglunnar (FBI). „Við erum að fara að byggja upp næstu kynslóð af nördatöffurum,“ segir Rakel. Hér heima segir hún Skema búið að kenna um 2.000 börnum og yfir 300 kennurum. Að auki hefur svo verið unnið við innleiðingu á notkun spjaldtölva og annarar tækni í fjölda skóla, auk margvíslegs samstarfs sem Skema hefur gengið til. Rakel segir mikla athygli sem fyrirtækið hafa fengið vissulega þrýsta á um hraðari vöxt, en hjá Skema gæti þau markvisst að því að fara ekki fram úr sér. „En við gerum ráð fyrir að setja upp alla vega fjögur setur á næsta ári,“ segir hún. Í framhaldinu verði svo farið í að setja upp. „En núna er mál númer eitt tvö og þrjú að koma upp setrinu hér.“Nýjum sjóði ýtt úr vör Reiknistofa bankanna og Skema ýttu fyrir helgi úr vör sjóði sem nefnist „Forritarar framtíðarinnar“. Hlutverk hans er að efla forritunar- og tæknimenntun í grunn- og framhaldsskólum.Að sjóðnum koma fyrirtæki af öllum stærðum og leggja honum lið á ýmsan máta. Bakhjarlar eru Nýherji, Íslandsbanki, Landsbankinn, Microsoft, RB, Cyan veflausnir og CCP. Í umfjöllun um sjóðinn á vef Skema kemur fram að upplýsingatæknigeirinn vaxi hratt og landið standi frammi fyrir skorti á tæknimenntuðu fólki. Þórunn Jónsdóttir framkvæmdastjóri Skema bendir á að þótt börn og unglingar verji miklum tíma í kringum tækni endi þau oft fremur í hlutverki neytenda tækni í stað þess að fá tækifæri til að vinna og skapa út frá tækninni. „Mikilvægt er að þau fái þjálfun og þekkingu sem til þarf til að kveikja áhugann - en áhugi er fyrsta skrefið í átt að efla enn frekar tæknimenntun þjóðarinnar,“ er eftir henni haft.
Mest lesið Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Viðskipti innlent Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Viðskipti innlent Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Neytendur Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Out of Office póstarnir: Þeir bestu og þeir glötuðustu Atvinnulíf Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Viðskipti innlent Vekja athygli á innköllun leikfangs Neytendur Sif Jakobs: „Ekta demantar eru nú einfaldlega ræktaðir“ Atvinnulíf Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Viðskipti innlent Lite-æðið hafi Íslendinga að fíflum Neytendur Fleiri fréttir Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Sjá meira