Starfsmenn hjóla til vinnu en geta fengið lánaðan flýtibíl til að skjótast frá Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 24. júní 2013 07:45 Finnur Sveinsson, sérfræðingur hjá Landsbankanum,stýrir þessu nýstárlega verkefni sem stuðlar að vistvænum samgöngum starfsmanna Landsbankans.
Starfsmönnum Landsbankans gefast frá og með deginum í dag kostur á að fá lánaðan bíl til styttri eða lengri tíma og draga þannig úr notkun einkabílsins. Verkefnið gengur undir nafninu Flýtibílar og er hluti af samgöngusamningi Landsbankans sem 360 starfsmenn hafa samþykkt. Finnur Sveinsson, sérfræðingur hjá Landsbankanum, segir samgöngusamninginn fela í sér hvatningu til starfsmanna um að nota vistvænar samgöngur, það er að nota allan annan ferðamáta en einkabílinn. „Það kemur oft upp í umræðunni að fólk komi á bíl í vinnuna vegna þess að það gæti þurft að skreppa eða hreinlega bara af því að það eigi hvort sem er bíl. Við bjóðum okkar starfsmönnum að nota frekar almenningssamgöngur þegar þeir geta og bílinn bara þegar þeir verða,“ segir Finnur. Hann segir samgöngusamninginn einnig hugsaðan sem kjarabót þar sem þetta geti orðið til þess að fólk getur losað sig við annan heimilisbílinn. Þá kveðst Finnur vona að fleiri fyrirtæki taki þetta upp, þrátt fyrir að Landsbankinn hafi átt frumkvæði að verkefninu, og jafnvel að bílaleigufyrirtæki taki upp á því að bjóða upp á þjónustuna á almennum markaði.Verkefnið Flýtibílar er unnið í samstarfi við bílaleiguna Höldur. Pálmi Viðar Snorrason hjá Höldi segist spenntur fyrir verkefninu. „Það eru þrjár leiðir fyrir fólk til þess að bóka bíl. Í fyrsta lagi á netinu á sérstakri flýtibílasíðu, í öðru lagi í gegnum síma og síðan getur fólk sent tölvupóst.“ segir Pálmi Viðar. Þegar starfsmenn hafa pantað bílinn fá þeir hann afhentan á tilsettum tíma hvar sem þeir kjósa. Ef fólk þarf skyndilega á bíl að halda getur hann verið kominn til þeirra innan 20 mínútna. Að nýtingartíma loknum er flýtibíllinn skilinn eftir þar sem leigutaka hentar þar sem hann er síðan sóttur af starfsmanni Hölds. Upphæð gjaldsins fer eftir lengd leigunnar og kílómetrafjölda. Pálmi segir það koma vel til greina að færa verkefnið yfir á almennan markað. „Okkur langar að sjá hvernig þetta þróast áður en við tökum þetta yfir á næsta level. Vonandi verður þetta framtíðin í bænum.“
Mest lesið Greiðsluáskorun Samstarf Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Viðskipti innlent Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Viðskipti innlent Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Neytendur Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Viðskipti innlent Lite-æðið hafi Íslendinga að fíflum Neytendur Rammagerðin leitar nauðasamninga Viðskipti innlent Fleiri fréttir Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Sjá meira