Skrifaði undir fríverslunarsamninga 24. júní 2013 14:24 Fulltrúar EFTA-ríkjanna á fundinum í dag. Mynd/EFTA
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra tók í dag þátt í ráðherrafundi EFTA-ríkjanna sem haldinn var í Þrándheimi. Á fundinum undirritaði Gunnar Bragi fríverslunarsamninga við Kostaríka, Panama og Bosníu-Herzegóvínu fyrir hönd Íslands. Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu segir að Gunnar Bragi hafi einnig skrifað undir samstarfsyfirlýsingar EFTA við Mjanmar. „Utanríkisráðherra lýsti ánægju með það öfluga starf sem unnið er innan EFTA við fríverslunarnet EFTA ríkjanna við ríki utan Evrópusambandsins og sagði það í samræmi við áherslur nýrrar ríkisstjórnar. Hvatti utanríkisráðherra sérstaklega til þess að stefnt yrði á að ljúka fríverslunarviðræðum EFTA-ríkjanna og tollabandalags Rússlands, Hvíta-Rússlands og Kasakstan á þessu ári. Þá ræddu ráðherrarnir um stöðu fríverslunarviðræðna EFTA-ríkjanna við Indland, Indónesíu og Víetnam og fögnuðu því að viðræður myndu hefjast fljótlega við Malasíu. Á fundinum ræddu ráðherrarnir um fríverslunarviðræður Bandaríkjanna og Evrópusambandsins og ákváðu að óska eftir viðræðum við bandarísk stjórnvöld til að fara yfir stöðu mála og greina frá hagsmunum EFTA ríkjanna í tengslum við áform þessara helstu viðskiptaríkja EFTA um að gera með sér víðtækan fríverslunar- og fjárfestingarsamning (TTIP),“ segir í tilkynningunni. „Á fundinum upplýsti utanríkisráðherra ráðherra hinna EFTA-ríkjanna um þá ákvörðun ríkisstjórnarinnar að gera hlé á aðildarviðræðum Íslands að Evrópusambandinu. Einnig ræddu ráðherrarnir um stöðu viðræðna innan Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar. Ráðherrarnir ræddu framvindu EES samningsins. Utanríkisráðherra ítrekaði mikilvægi hans fyrir Ísland og sagðist myndi leggja ríka áherslu á að tryggja virkni hans og styrkja enn frekar þátttöku Íslands í EES-ferlinu.“
Mest lesið Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Framúrskarandi fyrirtæki Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Sjá meira