Hlutur í Landsvirkjun seldur of lágu verði Kolbeinn Óttarsson Proppe skrifar 3. maí 2013 07:00 Ríkið keypti hlut borgarinnar í Landsvirkjun fyrir 27 milljarða árið 2007. Skilmálar skuldabréfs, sem var hluti söluhagnaðar borgarinnar, auka nú á lífeyrisskuldbindingar borgarinnar. fréttablaðið/vilhelm
Kaupverð ríkisins á 46 prósenta hlut í Landsvirkjun árið 2006 var allt of lágt. Þetta fullyrðir Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs. Í skýrslu úttektarnefndar á stjórnsýslu og stjórnkerfi Reykjavíkurborgar, sem kynnt var í gær, eru rök færð fyrir hinu sama. „Þegar horft er um öxl er hins vegar eðlilegt að spurt sé hvort það verð sem um samdist hafi verið rétt í ljósi þróunar ytri og innri aðstæðna eftir að samningar voru gerðir og fyrirtækið býr nú við,“ segir í skýrslunni. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, þáverandi borgarstjóri, og Árni M. Mathiesen, þáverandi fjármálaráðherra, sömdu um kaup ríkisins á 46 prósenta hlut í Landsvirkjun árið 2006 fyrir 27 milljarða króna. Hluti andvirðisins, þrír milljarðar, var greiddur í reiðufé, en afgangurinn, 24 milljarðar króna, í skuldabréfi sem lagt var inn hjá Lífeyrissjóði starfsmanna Reykjavíkur. Úttektarnefndin, en í henni sátu Sigurður Þórðarson, Ásdís Hlökk Theodórsdóttir og Sesselja Árnadóttir, segir að óumdeilt sé að orkuverð í heiminum muni hækka og eftirspurn stórkaupenda sé mikil. Útlit sé fyrir að heildararðsemi Landsvirkjunar muni aukast og þar með verðmat þess. Dagur bendir á að Landsvirkjun eigi í dag í kringum 200 milljarða króna í eiginfé og það án þess að eigandinn, ríkið, hafi lagt því til nokkurt fé. „Í staðinn fyrir að borgarsjóður væri að fá arðgreiðslur af hlut sínum og ábyrgðargjald vegna eigna sinna og skuldbindinga í Landsvirkjun á hverju einasta ári, þá er verið að borga með skuldabréfinu sem borgin tók sem greiðslu.“ Þar vísar hann í skilmála bréfsins sem sagt er frá hér fyrir ofan. Úttektarnefndin segir að gangi framkvæmdir Landsvirkjunar fram í samræmi við spár og áætlanir megi ætla að „orkusamningar við væntanlega kaupendur verði því aðeins gerðir að þeir skili ekki lakari arðsemi en núverandi samningar“. Engin endurskoðunarákvæði séu í sölusamningnum nema tengd sölu ríkisins á fyrirtækinu, komi til hennar, og spyrja megi „hvort fleiri atriði hefðu ekki átt að gefa tilefni til endurmats“.
Mest lesið Þarf stundum að kalla á eiginkonuna „komdu að sofa ástin“ Atvinnulíf „Biðröðin er löng“ Viðskipti innlent Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Viðskipti innlent Kappahl og Newbie opna á Íslandi Viðskipti innlent Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Viðskipti innlent Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Viðskipti innlent Bein útsending: Skattadagurinn 2026 Viðskipti innlent Hjá lækninum: Pikk, pikk, pikk og klikk, klikk, klikk Atvinnulíf Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Biðröðin er löng“ Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Sjá meira