Viðskipti innlent

Innleiða mannréttindareglur

Óli Kristján Ármannsson skrifar
Höfuðstöðvarnar Landsvirkjun er til húsa í Austurveri í Reykjavík.
Höfuðstöðvarnar Landsvirkjun er til húsa í Austurveri í Reykjavík. Fréttablaðið/Vilhelm
Með undirritun viðmiða Sameinuðu þjóðanna um samfélagsábyrgð (UN Global Compact) skuldbindur Landsvirkjun sig til að virða og innleiða tíu reglur um mannréttindi, vinnurétt, umhverfismál og varnir gegn spillingu.

Fram kemur í tilkynningu Landsvirkjunar að Global Compact séu útbreiddustu viðmið um samfélagsábyrgð í heiminum. Rúmlega 8.000 fyrirtæki og stofnanir um allan heim hafi undirritað Global Compact.

Aðild Landsvirkjunar er sagt eðlilegt framhald af innleiðingu á stefnu um samfélagsábyrgð sem fyrirtækið hafi unnið að undanfarin ár.

„Með undirritun Global Compact skuldbindur Landsvirkjun sig til að skila árlegri samantekt um framvindu og árangur á sviði samfélagsábyrgðar,“ segir í tilkynningunni.

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar.
„Landsvirkjun hefur frá stofnun lagt mikla áherslu á samfélagslega ábyrgð fyrirtækisins. Með undirritun Global Compact tökum við enn eitt skrefið og vonumst til þess að aðildin styðji okkur í því að gera áherslur og aðgerðir okkar enn sýnilegri og markvissari,“ er haft eftir Herði Arnarsyni, forstjóra Landsvirkjunar.



Þá kemur fram í tilkynningunni að Landsvirkjun hafi á haustdögum 2011 sett sér stefnu um samfélagsábyrgð og hafi síðan unnið að innleiðingu og framkvæmd stefnunnar í fyrirtækinu.

„Með stefnunni hefur Landsvirkjun einsett sér að starfa eftir ábyrgum stjórnarháttum, vinna með ábyrgum viðskiptavinum og birgjum, leggja áherslu á sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda, eiga gott samstarf við samfélagið, stuðla að heilbrigði og öryggi starfsfólks og vinna markvisst að miðlun þekkingar og nýsköpun.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×