Segir uppgjör Marel vera óviðunandi 23. apríl 2013 12:02 Theo Hoen er forstjóri Marel. Mynd/ GVA.
Greining Íslandsbanka segir að uppgjör Marel fyrir fyrsta ársfjórðung ársins verði að teljast óviðunandi fyrir stjórnendur og eigendur félagsins. Hagnaður félagsins á ársfjórðungnum var meira en helmingi lægri en á sama tímabili í fyrra. Í Morgunkorni greiningarinnar segir að tekjur félagsins á ársfjórðungnum námu 158 milljónum evra sem er samdráttur upp á tæplega 15% frá sama tímabili í fyrra. EBIT- framlegð félagsins var 6,5% af tekjum en var 11,4% á sama tímabili í fyrra og er því víðsfjarri markmiðum stjórnenda sem hljóða upp á að hlutfallið sé í kringum 10-12%. Viðbrögð markaðarins í dag eru, þegar þetta er skrifað (um kl. 11.00), er lækkun verðs hlutabréfa í félaginu um 1%, sem kemur til viðbótar lækkun gærdagsins upp á 1,7%. Staða pantanabókar félagsins hefur lækkað frá sama tímabili í fyrra og nemur lækkunin yfir 20%. Félagið hefur breytt tekjuspá sinni með þeim hætti að nú er miðað við að velta félagsins nái einum milljarði evra á árinu 2017, en áður var stefnt að ná þessu takmarki á árinu 2015. Gróft reiknað jafngildir þetta yfir 10% vexti tekna á ári, fram til ársins 2017. „Í ljósi þróunarinnar undanfarið má segja að hér sé um mjög metnaðarfullt markmið að ræða,“ segir í Morgunkorninu.
Mest lesið Verðbólga eykst verulega Viðskipti innlent Frosti og Arnþrúður fá styrki Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Viðskipti innlent Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Viðskipti innlent Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfa sig í gjafavali Atvinnulíf Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Viðskipti innlent Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur „Eitt sinn var ég ekki svo lánsöm að tilheyra stóru vinkonusamfélagi“ Atvinnulíf Eldsneytisverð lækkar um tæplega hundrað krónur á nýju ári Neytendur Fleiri fréttir Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ 15 ára afmæli kynjakvóta: „Langt frá því að vera fyrirmyndarríkið sem við teljum okkur vera“ Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes Sjá meira