Vill selja nær allt nema Byko 23. apríl 2013 20:03 Krónan er meðal fyrirtækja í eigu Norvíkur.
Viðræður standa yfir um sölu á nærri öllum innlendum eignum Norvikur til framtakssjóðs á vegum dótturfélags Arion banka að því er fram kom í kvöldfréttum RÚV. Norvik er eignarhaldsfélag í eigu Jóns Helga Guðmundssonar og fjölskyldu hans. Hér á landi á félagið verslanir Krónunnar, Nóatúns, Intersport, Byko, Kjarval og Elko. Félagið á einnig vöruhótelið Bakkann og fleiri eignir. Fram kom á RÚV að viðræður hafa staðið yfir að undanförnu um sölu á öllum innlendum eignum félagsins, nema Byko, til framtaksjóðsins SÍA II á vegum Stefnis, dótturfélags Arion banka. Jón Helgi staðfesti við fréttastofu RÚV í dag að viðræðurnar standi yfir en vildi ekki nefna mögulegt kaupverð eignanna. Þá sagði hann ótímabært að ræða hvenær stefnt sé að því að undirrita samninga. Hann sagði fyrirhugaða sölu ekki hluta af skuldauppgjöri, heldur sé að koma að kynslóðaskiptum í fyrirtækinu. Starfsfólki Norvikur hafa verið kynntar viðræðurnar. Hluthafar í framtakssjóðnum SÍA II eru um 30 talsins, einkum lífeyrissjóðir, fjármálafyrirtæki og fagfjárfestar að því er fram kemur á RÚV.
Mest lesið Bensínlítrinn hefur hækkað á ný Neytendur Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Viðskipti innlent Kerfisbilun skömmu fyrir hækkun en enginn ofgreiddi Neytendur Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Viðskipti innlent Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent „Það þýðir ekki að pissa í skóinn sinn“ Neytendur Arion hækkar vexti á ný Viðskipti innlent Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Viðskipti innlent Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Viðskipti innlent Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Sjá meira
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent