Viðskipti innlent

Tæplega 4,2 milljarða velta á fasteignamarkaði borgarinnar

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku var 112 að því er segir á vefsíðu Þjóðskrár Íslands. Þetta er nokkuð yfir vikumeðaltalinu síðustu þrjá mánuði sem er 101 samningur.

Af þessum 112 samningum voru 83 um eignir í fjölbýli, 24 samningar um sérbýli og 5 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði.

Heildarveltan var tæplega 4,2 milljarðar króna og meðalupphæð á samning 37,1 milljón króna.

Veltan var tæpum milljarði króna meira en nemur vikumeðaltalinu undanfarna þrjá mánuði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×