Milljón fyrir Íslendingaapp - keppni lýkur í dag 13. apríl 2013 10:01
Samkeppni Háskóla Íslands og Íslenskrar erfðagreiningar um svokallað Íslendingaapp lýkur í dag með úrslitakeppni sem fram fer í sal Íslenskrar erfðagreiningar eftir hádegi. Í keppninni er leitað eftir nýjum hugmyndum að notkun Íslendingabókar á snjallsímum. Tíu ár eru liðin frá því að Íslendingabók var opnuð á netinu og nota um 2500 manns Íslendingabók á hverjum degi. Tólf lið skráðu sig til leiks í keppninni og sex þeirra skiluðu tillögum að appi fyrir tilskildan tíma, á miðnætti miðvikudaginn 10. apríl. Frá því í gær hefur almenningur geta kynnt sér lausnirnar sex á Facebook-síðu keppninnar og jafnframt valið þar bestu lausnina í skoðanakönnun. Atkvæði almennings vega jafnt á móti áliti dómnefndar keppninnar í þeim þáttum sem kosið verður um í netkönnuninni. Keppninni lýkur formlega kl. 13:00 í dag í sal Íslenskrar erfðagreiningar. Þar kynna hóparnir afrakstur vinnu sinnar fyrir dómnefnd og gestum. Að kynningum loknum getur dómnefnd komið með fyrirspurnir eða athugasemdir. Á meðan dómnefnd ræður ráðum sínum mun Ari Eldjárn skemmta gestum með uppistandi. Hægt verður að taka þátt í vali á besta appinu á Facebook meðan á kynningunum stendur en gert er ráð fyrir að lokað verði fyrir kosninguna fimmtán mínútum eftir að síðasta lið hefur kynnt sína lausn. Allir eru velkomnir á kynningu keppenda en þeir sem ekki eiga heimangengt geta fylgst með kynningunum í beinni útsendingu á heimasíðu keppninnar, www.islendingaapp.is. Í fyrstu verðlaun er ein milljón króna sem liðsmenn skipta með sér. Gert er ráð fyrir því að vinningslausnin verði nýtt sem viðbót fyrir Íslendingabók.
Mest lesið Bensínlítrinn hefur hækkað á ný Neytendur Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Viðskipti innlent Kerfisbilun skömmu fyrir hækkun en enginn ofgreiddi Neytendur Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Viðskipti innlent Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent „Það þýðir ekki að pissa í skóinn sinn“ Neytendur Arion hækkar vexti á ný Viðskipti innlent Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Viðskipti innlent Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Viðskipti innlent Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Sjá meira
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent