Lífeyrissjóðirnir eiga um þriðjung hlutabréfa í Kauphöllinni 13. júní 2013 11:18
Lífeyrissjóðir landsins eiga í eigin nafni 31% af hlutabréfum félaga sem eru skráð á aðallista Kauphallarinnar eða um 124 milljarða kr. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að lífeyrissjóðirnir áttu í apríl 228 milljarða kr. í innlendum hlutabréfum og hlutabréfasjóðum. Samkvæmt upplýsingum frá Seðlabankanum er um að ræða skráð hlutbréf, óskráð hlutabréf og bréf í ýmsum framtakssjóðum. Innlend hlutabréf nema nú 9,3% af hreinni eign sjóðanna til greiðslu lífeyris. Misjafnt er hversu stóran hluta lífeyrissjóðirnir stefna að því að eiga í innlendum hlutabréfum en algengt er að hlutföllin liggi á bilinu 5-20%. Við búumst við því að endurfjárfestingaþörf sjóðanna á næstu árum verði 135 milljarðar kr. á ári. „Samkvæmt gögnum frá Kauphöllinni yfir 20 stærstu eigendur skráðra félaga eiga lífeyrissjóðirnir um 124 milljarða kr. í skráðum félögum á aðallista Kauphallarinnar í eigin nafni. Það má vænta þess að hlutdeild þeirra sé í raun nokkuð stærri þar sem hlutdeild þeirra nær væntanlega ekki í öllum tilfellum upp í hluta stærstu eigenda auk þess sem þeir eigi eitthvað af skráðri eign í gegnum sjóði,“ segir í Morgunkorninu. „Lífeyrissjóðirnir hafa jafnframt verið atkvæðamiklir eigendur í framtakssjóðum, s.s. Framtakssjóð Íslands og SÍA. Ekki er ólíklegt að eitthvað af þeim félögum sem fyrrgreindir sjóðir eiga verði skráð á markað í fullnustu tímans en þannig hefur m.a. verið opinberlega gefið út að Sjóvá sem er í eigu SÍA 1 verði skráð á markað. Athyglisvert er að sjá hvernig eign lífeyrissjóðanna skiptist á milli félaga. Lífeyrissjóðirnir eiga hlutfallslega mest í Icelandair hvort sem litið er til hlutfallslegrar eignar eða markaðsvirðis eignarhlutans. Lífeyrissjóðirnir eiga aftur minnst í VÍS bæði hlutfallslega og að markaðsvirði. Lífeyrissjóðirnir eignuðust reyndar ekki stóra hlutdeild í VÍS við skráningu og hafa aukið hlut sinn nokkuð hratt. „
Mest lesið Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Framúrskarandi fyrirtæki Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Sjá meira