Súrt epli sem Alcoa Fjarðaál verður að bíta í Magnús Þorlákur Lúðvíksson skrifar 14. maí 2013 14:30 Frá Kárahnjúkavirkjun. Vatnshæð Hálslóns hefur aldrei verið lægri en nú. Fréttablaðið/Pjetur
Alcoa Fjarðaál neyðist til þess að draga úr álframleiðslu í júní nema veðurfar á Austurlandi verði sérlega hagstætt næstu vikurnar. Vegna tíðarfars er óvenju lítið vatn í Hálslóni og því er útlit fyrir að Kárahnjúkavirkjun framleiði ekki næga orku á næstunni til að þjónusta álverið. „Þetta hefði þau áhrif á okkar starfsemi að við þyrftum að draga úr framleiðslu. Það er mikið mál en við myndum annaðhvort lækka hjá okkur straum, taka nokkur ker úr rekstri eða þá gera hvort tveggja,“ segir Magnús Þór Ásmundsson, forstjóri Alcoa á Íslandi. Samkvæmt bréfi sem Landsvirkjun hefur sent Fjarðaáli lítur út fyrir að Landsvirkjun þurfi að skerða þá orku sem Fjarðaál fær um ríflega 10% tímabundið. Landsvirkjun þarf þó ekki að bæta Fjarðaáli orkutapið þar sem um er að ræða svokallaða ótrygga orku sem heimilt er að skerða samkvæmt orkusölusamningi fyrirtækjanna. „Við þurfum því að bíta í þetta súra epli en við erum auðvitað í samskiptum við Landsvirkjun um málið og ætlumst til þess að allir vinni í þá átt að við fáum það rafmagn sem við höfum samið um,“ segir Magnús Þór. Staða yfirborðs Hálslóns, sem miðlar Kárahnjúkavirkjun, og Þórisvatns, sem miðlar Vatnsfellsvirkjun, hefur ekki verið verri síðan árið 1999 þar sem vorleysinga er enn beðið. Vatnshæð Hálslóns hefur aldrei verið lægri.
Mest lesið Bensínverð hefur lækkað Viðskipti innlent Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Atvinnulíf Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Viðskipti erlent Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Viðskipti innlent Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Viðskipti innlent Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Viðskipti innlent Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Viðskipti erlent Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Viðskipti innlent Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Viðskipti erlent Fleiri fréttir Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Sjá meira