FME kannar mögulega markaðsmisnotkun í útboðum TM og VÍS 14. maí 2013 11:36
Fjármálaeftirlitið (FME) segir að sú hegðun fjárfesta að leggja fram hærri tilboð í útboðum en þeir geta staðið við geti talist vera markaðsmisnotkun í skilningi laganna. Þessi athugasemd Fjármálaeftirlitsins er gerð með vísan í það að undanfarið hafa fjölmiðlar sagt frá mikilli umframeftirspurn eftir bréfum í tryggingafélögin VÍS og Tryggingamiðstöðina. Fram hefur komið að tíföld umframeftirspurn var eftir bréfum í VÍS og áttatíuföld umframeftirspurn var eftir bréfum í TM. Á vefsíðu FME segir: „Nokkuð hefur verið fjallað um það í fjölmiðlum að undanförnu að fjárfestar geri hærri tilboð í hlutafjárútboðum en þeir geti staðið við. Ástæðan sé sú að þeir geri ráð fyrir umtalsverðri skerðingu og fari þessa leið til að auka hlut sinn. Fjármálaeftirlitið telur mögulegt að slík hegðun eigi þátt í þeirri miklu umframeftirspurn sem verið hefur í hlutafjárútboðum að undanförnu. Af þessu tilefni vill Fjármálaeftirlitið vekja athygli fjárfesta á því regluverki sem gildir um hlutafjárútboð en um útboð og töku verðbréfa til viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaði gilda lög um verðbréfaviðskipti... Fjármálaeftirlitið telur að sú hegðun þegar fjárfestir leggur inn hærri tilboð en hann getur staðið við geti talist vera markaðsmisnotkun í skilningi 117. gr. laganna, enda er með því verið að gefa eftirspurn fjármálagerninga ranglega eða misvísandi til kynna. Fjármálaeftirlitið fer nú yfir verklag við hlutafjárútboð með hliðsjón af framansögðu.“
Mest lesið Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Viðskipti innlent Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Viðskipti innlent Daníel Þór frá Kviku til Reita Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Viðskipti innlent Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Viðskipti innlent Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Neytendur Fleiri fréttir Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Sjá meira