Sir Richard keypti íslenska hesta fyrir um 100 milljónir 14. maí 2013 13:21 Hér má sjá nokkra af þeim hestum sem Sir Richard keypti í vetur.
Breski auðmaðurinn Sir Richard Georg hefur keypt íslenska hesta fyrir í kringum 100 milljónir kr. Þeir eru staðsettir á bænum Lækjarmóti II í Víðidal í Húnaþingi. Eins og kunnugt er af fréttum hefur Sir Richard ákveðið að leggja til um hálfan milljarð kr. í uppbygginu á hesthúsi og reiðhöll við bæinn. Sjá hér. Á vefsíðu Lækjarmóts kemur fram að hestarnir, sem eru 11 að tölu, hafi verið keyptir í febrúar s.l. og sé þeim ætlað að efla hrossaræktina á bænum. Hestarnir sem hér um ræðir eru sex 1.verðlauna hryssur, Þær Katla frá Blönduósi (aðaleinkunn 8,25), Eydís frá Hæli (a.e 8,24), Sýn frá Grafarkoti (a.e 8,13), Návist frá Lækjamóti (a.e 8,21), Dimma frá Hólum (a.e 8,06) og Viðreisn frá Búðardal (a.e 8,10). Auk þess voru keppnishestarnir Vaðall frá Akranesi (a.e 8,42), Sólbjartur frá Flekkudal (a.e 8,29), Gandálfur frá Selfossi (a.e 8,46), Korði frá Kanastöðum og Flosi frá Búlandi. Ábúendurnir áttu fyrir áttu þau Freyði frá Leysingjastöðum (a.e 8,17). Vísir hefur heimildir fyrir því að algengt verð á hestum af svipuðum gæðum og þeim sem hér eru taldir upp sé í kringum 10 milljónir króna hver, eða ekki langt frá þeirri upphæð. Ísólfur Líndal Þórisson bóndi á Lækjarmóti vill ekki tjá sig um hve mikið fyrrgreindir hestar hafi kostað. Sir Richard hafi viljað hafa úrvalshesta til eigin nota á bænum en þeir verða að öðru leyti notaðir við framtíðarrekstur á þessu hrossabúi. Eins og fram hefur komið er m.a. ætlunin að reka þar reiðskóla fyrir erlenda ferðamenn.Bjartsýnn á framtíðina Ísólfur Líndal er mjög bjartsýnn á framtíðina á Lækjarmóti. Hann reiknar með að byggingar þær sem nú eru að rísa við bæinn verði tilbúnar í janúar á næsta ári. “Við erum með ýmsar hugmyndir um hvernig við nýtum aðstöðuna þegar hún er að fullu komin í gagnið,” segir Ísólfur. “Ein er sú að stíla á auðugri ferðamenn þegar kemur að reiðkennslunni og hestamennskunni.” Ísólfur segir að ekki verði gistiaðstaða fyrir ferðamenn á Lækjarmóti en hann bendir á að töluvert sé af frábæru gistirými í boði í sveitinni sem bær hans tilheyrir. Það verði því ekki vandamál að koma ferðamönnunum fyrir sem vilja nýta sér það sem verður í boði á Lækjarmóti.
Mest lesið Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Viðskipti innlent Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Viðskipti innlent Daníel Þór frá Kviku til Reita Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Viðskipti innlent Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Viðskipti innlent Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Neytendur Fleiri fréttir Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Sjá meira