Viðskipti innlent

Greining Íslandsbanka spáir 1,2% hagvexti í ár

Greining Íslandsbanka hefur gefið út nýja þjóðhagsspá. Gert er ráð fyrir að hagvöxtur hér á landi verði 1,2% á þessu ári. Þetta er hægur vöxtur í sögulegu samhengi, en meðalhagvöxtur hér á landi síðustu 30 árin er 2,5%. Þetta er jafnframt  lægri hagvöxtur en aðrir sérfræðingar hafa spáð.

Í tilkynningu segir að þetta sé þó ögn meiri hagvöxtur en sjá má að jafnaði í viðskiptalöndunum um þessar mundir, en þar er spáð 0,8% hagvexti að meðaltali í ár. Spá Greiningarinnar fyrir hagvöxt í ár er nokkuð lægri en spár annarra aðila sem birt hafa hagspár undanfarið og talsvert undir síðustu spá sem birtist síðastliðið haust. Frá þeim tíma hefur almennt dregið úr væntingum um hagvöxt á þessu ári. Reiknað er með að vöxturinn glæðist þegar kemur fram á næsta ár. Greiningin spáir 3,1% hagvexti 2014 og 2,7% hagvexti 2015. Verður vöxtur bæði árin rétt yfir langtímahagvexti og nokkuð yfir þeim hagvexti sem spáð er í helstu viðskiptalöndunum á næsta ári.

Spáir 1,8% vexti einkaneyslu

Greiningin spáir 1,8% vexti einkaneyslu í ár en að vöxturinn verði nokkuð hraðari á næstu tveimur árum,  eða 2,6% árið 2014 og 2,4% árið 2015. Til grundallar þessum vexti liggur spá Greiningar um vöxt kaupmáttar launa sem reiknað er með að aukist um 2,0% í ár, 2,5% á næsta ári og 2,0% á árinu 2015. Þá gerir Greiningin einnig ráð fyrir því að atvinnuástandið batni á spátímabilinu og að atvinnuleysið verði komið niður í 3,9% á árinu 2015. Spáð er hækkun á raunverði íbúðarhúsnæðis á næstu tveimur árum, þ.e. 1,9% á næsta ári og 1,7% á árinu 2015, en það mun einnig bæta fjárhag heimila. Óvissa er hins vegar enn um hvaða áhrif boðaðar aðgerðir stjórnvalda til að bæta stöðu heimilanna munu hafa þar sem þær hafa ekki verið útfærðar enn sem komið er.

Fjárfesting dregst saman um 19,7%

Greiningin spáir því að fjárfesting atvinnuveganna dragist saman um 19,7% í ár. Á móti fellur hins vegar 18% aukning í fjárfestingu í íbúðarhúsnæði og 20% aukning í fjárfestingu hins opinbera. Á komandi misserum reiknar Greiningin með því að fjárfesting í orkutengdum iðnaði fari á fullt skrið að nýju eftir nokkurt hlé. Er það ein meginforsenda þess að Greining spáir 20,2% vexti í fjárfestingum atvinnuveganna á næsta ári og 10,6% vexti árið 2015. Auk þess reiknar hún með nokkuð hröðum vexti í fjárfestingum í íbúðarhúsnæðis, eða 22,0% á næsta ári og 15,0% á árinu 2015. Mun hækkun kaupmáttar ráðstöfunartekna, verðhækkun íbúðarhúsnæðis, skortur á nýju húsnæði ásamt hugsanlegri eftirgjöf á skuldum heimila ýta undir íbúðafjárfestingu.

Þá gerir Greiningin ráð fyrir að krónan muni veikjast og að verðbólgan verði nokkuð þrálát, 3,0% á næsta ári og 3,6% á árinu 2015. Spáð er að Seðlabankinn muni bregðast við því með frekari hækkun stýrivaxta þegar kemur fram á næsta ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×