Hækkar í Hálslóni, ekki þarf að skerða orku til Alcoa 5. júní 2013 13:20
Vorflóð eru hafin á vatnasviði Fljótsdalsstöðvar og hækkar nú hratt í Hálslóni. Af þeim sökum þarf Landsvirkjun ekki að skerða orkusöluna til Alcoa Fjarðaáls. Fjallað er um málið á vefsíðu Landsvirkjunar og þar er að finna kortið sem fylgir hér með. Á vefsíðunni segir að þann 30. maí fór að hækka í lóninu eftir samfellda lækkun frá því í september í fyrra. Lægst fór lónið í um 570 metra yfir sjávarmáli þann 28. maí síðastliðinn. Innrennslið hefur aukist dag frá degi og hækkar nú um hálfan meter á dag í Hálslóni. Mikill snjór er á vatnasviðinu þannig að búist er við því að hratt hækki í lóninu á næstu vikum ef hlýindi haldast. Eins og kom fram í frétt Landsvirkjunar 9. maí leiddi óvenjulegt veðurfar í vetur til þess að staða í miðlunarlónum Landsvirkjunar á norður og austurlandi var verri en spár gerðu ráð fyrir í upphafi vetrar. Af þessum sökum dró Landsvirkjun úr raforkuvinnslu í Blöndustöð og Fljótsdalsstöð eins og kostur er og jók þess í stað vinnslu í aflstöðvum á vatnasviði Tungnaár og Þjórsár. Flutningskerfi Landsnets takmarkar hinsvegar verulega svigrúm til orkuflutnings milli landshluta. Landsvirkjun óskaði eftir því við Alcoa Fjarðaál að draga tímabundið úr orkunotkun og tilkynnti um mögulega orkuskerðingu eins og gert er ráð fyrir í samningum milli fyrirtækjanna. Í ljósi batnandi stöðu í Hálslóni nú mun ekki þurfa að grípa til boðaðra skerðinga.
Mest lesið Bensínverð hefur lækkað Viðskipti innlent Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Viðskipti erlent Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Viðskipti innlent Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Atvinnulíf Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Viðskipti innlent Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Viðskipti innlent Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Viðskipti innlent Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Viðskipti erlent Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Viðskipti erlent Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Sjá meira