Vísbendingar um samdrátt í einkaneyslu frá áramótum 15. apríl 2013 11:46
Kortaveltutölur fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins benda til þess að einkaneysla hafi dregist saman að raunvirði á fyrsta ársfjórðungi. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að í nýlega birtum tölum Seðlabankans um greiðslumiðlun til og með mars á þessu ári kemur fram að debetkortavelta í mars var 4,4% minni í krónum talið en í sama mánuði í fyrra. Kreditkortavelta jókst hins vegar um 3,4% á sama kvarða mælt. „Mikil fylgni er milli raunþróunar kortaveltu einstaklinga og einkaneyslu hér á landi, enda kortanotkun útbreiddari hérlendis en víðast hvar annars staðar. Ef tekin er saman heildar kreditkortavelta og debetkortavelta í innlendum verslunum kemur í ljós að kortavelta á þann kvarða dróst saman að raungildi um 2,3% í mars frá sama mánuði í fyrra,“ segir í Morgunkorninu. „Er þetta athyglisvert í ljósi þess að debetkortaveltan í mars náði þetta árið að mestu yfir páskafrí landsmanna, þegar ætla mætti að heimilin gerðu betur við sig en endranær. Sé tekið mið af fyrsta fjórðungi ársins nemur samdráttur kortaveltu á þennan kvarða tæpu prósentustigi.“ Þá segir að einföld greining gefur þá niðurstöðu að einkaneysla á fjórðungnum kunni að hafa dregist saman um 1-2% frá sama tíma í fyrra. Yrði það þá í fyrsta sinn frá öðrum ársfjórðungi 2010 sem einkaneysla myndi dragast saman milli ára. „Hér má bæta við að fram kom í nýlegu viðtali við formann Bílgreinasambandsins að samdráttur varð í bílakaupum einstaklinga og fyrirtækja nú í mars frá sama tíma í fyrra. Mikil aukning í bílakaupum einstaklinga átti talsverðan þátt í 2,7% vexti einkaneyslu í fyrra, en ekki er víst að sú þróun haldi áfram á þessu ári. Nýlegar hagspár gera ráð fyrir 2,0-2,5% vexti einkaneyslu í ár,“ segir í Morgunkorninu. „Hljóma þær í bjartsýnni kantinum að okkar mati miðað við hvernig árið fer af stað, og hvernig horfur eru varðandi þróun á ráðstöfunartekjum heimilanna það sem eftir lifir árs.“
Mest lesið Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Viðskipti innlent Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Daníel Þór frá Kviku til Reita Viðskipti innlent Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Viðskipti innlent Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Neytendur Fleiri fréttir Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Sjá meira