Sala á hlut ríkisins í bönkunum margrædd Höskuldur Kári Schram skrifar 29. mars 2013 12:16 Björn Valur Gíslason formaður fjárlaganefndar Alþingis.
Björn Valur Gíslason, formaður fjárlaganefndar Alþingis segir að viðræður um sölu á eignarhlutum ríkisins í bönkunum eigi ekki að koma stjórnarandstöðunni á óvart. Ítarlega hafi verið fjallað um málið á Alþingi á undanförnum mánuðum. Óformlegar viðræður eru nú í gangi milli lífeyrissjóðanna, erlendra kröfuhafa og stjórnvalda um sölu á hlut ríkisins í bönkunum. Þingmenn Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks hafa sakað ríkisstjórnina um leynimakk og hafa óskað eftir fundi í efnahags-og viðskiptanefnd til að ræða málið. Björn Valur Gíslason, formaður fárlaganefndar Alþingis, segir að þetta eigi ekki að koma stjórnarandstöðunni á óvart. „Þetta er búið að vera til umræðu meira og minna undanfarin ár. Fyrst þegar þetta var kynnt í tengslum við fjárfestingaáætlun stjórnvalda sem grundvallast að talsverðum hluta að því að selja eignarhlut ríkisins í fjármálafyrirtækjum til að fjármagna þá áætlun. Síðan var þetta mikið til umræðu síðast í haust í tengslum við fjárlagagerð yfirstandandi árs," segir Björn Valur. Þá hafi fjárlaganefnd kallað til sín á fund fjármálaráðherra, bankastjóra og fleiri. Alþingi hafi svo sett sérstök lög á síðasta ári um sölumeðferð fjármálafyrirtækja til að tryggja gagnsæi. Þau lög hafi verið samþykkt eftir mikla og harða umræðu. „Ég bara veit ekki hver staðan er nákvæmlega í söluferlinu. Það er Bankasýslan sem fer með eignarhlut ríkisins. Fjármálaráðherra er heimilt samkvæmt lögum sem voru samþykkt fyrir jól að vinna að sölu bankanna, selja þá að öllu leyti eða hluta til, en samkvæmt því sem Bankasýslan leggur upp með að verði gert og í samráði við þingnefndir," segir Björn Valur aðspurður um það hvort hægt sé að samþykkja söluna án þess að fyrir liggi samþykki Alþingis.
Mest lesið Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Viðskipti innlent Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Daníel Þór frá Kviku til Reita Viðskipti innlent Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Viðskipti innlent Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Neytendur Fleiri fréttir Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Sjá meira