Vilja ekki bæta ryðgalla í Range Rover Valur Grettisson skrifar 1. júlí 2013 14:40 Range Rover. „
Þetta er stórtjón, það kostar hátt í hálfa milljón að gera við þetta, þó ég viti ekki nákvæmlega hvað viðgerðin kostar,“ segir bílaáhugamaðurinn Ársæll Ármannsson, en hann uppgötvaði fyrir tilviljun að Range Rover sem hann keypti úr þrotabúi árið 2010 væri með alvarlegan galla í hlera í afturhluta bílsins. Bíllinn, sem er af gerðinni Range Rover HSE, var framleiddur árið 2007, og þykir mörgum hann vera ein af táknmyndum hrunsins. Ársæll er ósáttur við að hann þurfi að standa straum af tjóninu, en umboðið fyrir Range Rover hér á landi tryggir bílana í fimm ár, eftir það þarf eigandinn að borga allan kostnað sjálfur. Bíll Ársæls er því nýrunninn úr ábyrgð. Samkvæmt upplýsingum frá umboðinu er þetta ekki fyrsti bíllinn sem kemur til þeirra með ryð á þessum stað, um er að ræða galla við framleiðslu. Þó er aðeins um örfá tilvik að ræða, „þau eru innan við tíu,“ sagði Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri þjónustusviðs B&L sem fer með umboð fyrir Range Rover. Hann benti hinsvegar á að fyrirtækið byði viðskiptavinum sínum viðgerð á kostakjörum, sé bifreiðin runnin úr ábyrgð. Ársæll segir þetta ekki nægja. Hann telur að gallinn hafi orðið til við framleiðslu bílsins, og fyrirtækið eigi að bæta skaðann að fullu. Sjálfur hefur hann haft samband við FÍB vegna málsins og segist tilbúinn að fara alla leið með það. Ársæll spyr svo hversu mikið af eigendum samskonar bíla, sem nú eru komnir úr ábyrgð, eigi við sama vanda að etja, enda erfitt að sjá ryðið. „Það er borðleggjandi, held ég, að ef það væru dómkvaddir matsmenn fengnir til þess að skoða þetta, þá væru þeir sammála mér,“ segir Ársæll að lokum.
Mest lesið Greiðsluáskorun Samstarf Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Viðskipti innlent Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Viðskipti innlent Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Neytendur Fjárfestingararmur Samherja bætir við sig í Högum Viðskipti innlent Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Samstarf Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Viðskipti innlent Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Fleiri fréttir Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Sjá meira