Ljóst.is birtir ný gögn um lánveitingar hjá Glitni Kristján Hjálmarsson skrifar 30. desember 2013 09:11 Pedro Noel og Santiago Carrion, ritstjórar Ljóst.is.
Um misskilning var að ræða þegar hlutir Bjarna Benediktssonar í Glitni voru taldir sem íslenskar krónur í skjölum sem uppljóstrunarsíðan Ljóst.is birti í gær. Þetta kemur fram í bréfi frá aðstandendum síðunnar. Vegna þessa hafa aðstandendur síðunnar ákveðið að birta lista sem notaður var innanhúss hjá Glitni yfir helstu lánveitingar til einstaklinga og fyrirtækja dagsett í september árið 2008. Fram kom í fjölmiðlum í gær og í morgun að uppljóstrunarsamtökin Associated Whistle-Blowing Press hefði birt gögn úr Glitni frá því rétt fyrir hrun. Á síðunni er sagt að skjölin geymi upplýsingar um stærstu lántakendur bankans, hagsmunaaðila og hreyfingu á hlutabréfum árin 2007 og 2008. Í einu skjalanna er sagt að Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra hafi fengið tæpa 6 milljarða að láni hjá bankanum en ekki 174 milljónir eins og fram kom í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis árið 2010. Þar eru einnig birt skjöl sem eiga, samkvæmt Ljóst.is, að sýna fram á að Glitnir hafi greitt fyrir persónuleg útgjöld Bjarna Ármannssonar, fyrrverandi bankastjóra Glitnis. „Það var vissulega um misskilning að ræða varðandi skjalið „Loans.pdf“, þar sem hlutir í bankanum voru taldir vera íslenskar krónur,“ segir í bréfi frá Pedro Noel og Santiago Carrion, ritstjórum Ljóst.is. „Þökk sé blaðamönnum sem yfirfóru gögnin og tóku eftir þessu. Ljóst.is birti #Glitnisgögn með það að markmiði: að fólk geti rannsakað og túlkað þau að eigin vild.“ Í bréfinu segja þeir að frekari rannsókn verði að eiga sér stað. „Við vonumst til að blaðamenn, yfirvöld og almenningur, sem eru vel upplýstir um það sem gerðist á Íslandi, geti rannsakað málið. Gögnin sem við fengum um Glitni eru almennt mjög nákvæm og ofgnótt smáatriða - sum staðfest af fólki sem koma fyrir í sjálfum gögnunum. Það er mikilvægt og verður að taka með í reikninginn að Ljóst.is birtir ekki töluvert magn gagna til að upplýsa ekki um hagi þriðja aðila.“
Mest lesið Há laun og dýr bjór séu vandamál ÁTVR Viðskipti innlent „Svo hefst kapphlaupið í það hver er fyrstur að ná sturtunni!“ Atvinnulíf Dagar Workplace eru taldir Viðskipti erlent Rauf sátt vegna Max-málsins og gæti átt yfir höfði sér refsimál Viðskipti erlent Fyrirtæki hvött til að halda upp á daginn í dag og gera sér dagamun Atvinnulíf Hnífjöfn atkvæðagreiðsla sem gæti endað fyrir dómi Viðskipti innlent Segir arðgreiðslur ÁTVR hafa lækkað um 400 milljónir vegna netsölu Viðskipti innlent Fyrsta flugi Icelandair til Pittsburgh fagnað Viðskipti Fóru í fyrsta flugið milli Calgary og Keflavíkurflugvallar Viðskipti innlent Base parking gjaldþrota Viðskipti innlent Fleiri fréttir Há laun og dýr bjór séu vandamál ÁTVR Hnífjöfn atkvæðagreiðsla sem gæti endað fyrir dómi Segir arðgreiðslur ÁTVR hafa lækkað um 400 milljónir vegna netsölu Fóru í fyrsta flugið milli Calgary og Keflavíkurflugvallar Segir að Play sé og verði áfram með höfuðstöðvar á Íslandi Guðmundur tilnefndur til Evrópsku nýsköpunarverðlaunanna 2024 Forstjóri Play íhugar að fljúga frekar til Íslands en frá Base parking gjaldþrota Endurkjörinn formaður og fimm koma ný inn í stjórn Þjónusturof hjá alþjóðlegum birgja Samkaup, Heimkaup og Orkan hefja samrunaviðræður Stefna á opnun fyrsta skammtíma raforkumarkaðarins á næsta ári Bein útsending frá Nýsköpunarviku Sparisjóður hagnaðist um 205 milljónir króna Starfsfólk fær 150 milljónir í hlutabréfum Magnús eignast Latabæ á nýjan leik Ráðin framkvæmdastjóri Rue de Net Almennt útboð Íslandshótela hefst á morgun Ætlar að gera Grillhúsið að heitasta staðnum í Borgarnesi Landsvirkjun selur í fyrsta skipti í raforkukauphöll Ráðin forstöðukona Nýrra orkukosta Eigendur TGI Fridays kaupa Grillhúsið Freyr ráðinn til Eflingar Tilnefndur sem besti leikur fyrir snjalltæki á Norðurlöndum MAST olli Brúneggjum tjóni en RÚV sýknað Tilboðið afturkallað og Eik öðlast frelsi til athafna á ný Brottfarirnar í apríl nokkuð færri en á síðasta ári Engin hópuppsögn í apríl Fer frá Deloitte til Góðra samskipta Mun stýra tæknisviði Carbfix Sjá meira