HH skora á FMÍ að stöðva allar innheimtur á gengislánum 6. maí 2013 09:05
Hagsmunasamtök heimilanna (HH) skora á Fjármálaeftirlitið (FMÍ) að stöðva allar innheimtur á gengistryggðum lánum þar til lánastofnanir geta sannað að lánin séu reiknuð með réttarhagsmuni skuldara að leiðarljósi. Í tilkynningu segir að Hagsmunasamtök heimilanna hafa kannað úrtak endurútreikninga áður gegnistryggðra lána frá lánastofnunum og fyrirtækjum í slitameðferð. Ljóst er að endurútreikningar eru rangir í meirihluta tilfella þar eð brotið er á rétti skuldarans til seðlabankavaxta af ofgreiddum afborgunum. Munað getur töluverðum upphæðum ef ofgreiðslur áttu sér stað yfir langt tímabil. Skuldarinn á rétt á svokölluðum seðlabankavöxtum af þeirri fjárhæð sem var umfram réttmæta afborgun frá þeim degi sem ofgreiðsla fór fram. Ekki er ásættanlegt að draga endurgreiðsluna einungis frá höfuðstól þar sem skuldarinn er þá hlunnfarinn um mismun á milli þeirra vaxta er greiddir voru af láninu og seðlabankavaxta sem falla eiga í hlut lántaka. Sýslumönnum er góðfúslega bent á að aðfararbeiðnir sem byggðar eru á þeim endurútreikningum sem hér um ræðir, eru tilhæfulausar nema kröfuhafi geti sýnt fram á að endurreiknað hafi verið í samræmi við lög um vexti og verðtryggingu... Jafnframt þarf að taka tillit til Hæstaréttardóma… um fullnaðargildi kvittana og bann við afturvirkum vaxtavöxtum. Það verður að teljast nokkuð bíræfið af lánastofnunum að ganga enn og aftur á rétt skuldara, en reikna má með að fjármálastofnanir verði gerðar afturreka með útreikningana þar til þeir hafa verið rétt framkvæmdir. Nýverið gaf FME út tilmæli til lánastofnana um að rökstyðja/sanna lögmæti gengisbundina lánasamninga (sem í tilmælunum eru nefnd erlend lán). Hagsmunasamtök heimilanna skora hér með á Fjármálaeftirlitið að ganga skrefinu lengra og stöðva allar innheimtur áður gengistryggðra lána þar til lánastofnanir geta sannað að lánin séu reiknuð með réttarhagsmuni skuldara að leiðarljósi. Svo augljós brot gegn skuldurum sem að ofan greinir taka af allan vafa um einbeittan brotavilja kröfuhafa að mati samtakanna. Löngu er tímabært að byrði sönnunar sé færð yfir á kröfuhafa í ljósi stórfelldrar misnotkunar á aðstöðumun gagnvart skuldurum, að því er segir í tilkynningunni.
Mest lesið Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Viðskipti innlent Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Viðskipti innlent Daníel Þór frá Kviku til Reita Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Viðskipti innlent Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Viðskipti innlent Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Neytendur Fleiri fréttir Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Sjá meira