Met í apríl: Ferðamönnum fjölgaði um 21% milli ára 6. maí 2013 12:31
Alls fóru 45.800 erlendir gestir frá landinu um Leifsstöð í apríl sl., sem er 8.100 fleiri en þeir voru í apríl í fyrra. Nemur fjölgunin á milli ára rúmlega 21%, og er hér um fjölmennasta aprílmánuð frá upphafi að ræða hvað erlenda ferðamenn varðar. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að því sé sama sagan uppi á teningnum og verið hefur, þar sem met er slegið mánuð eftir mánuð. Eru brottfarir erlendra ferðamanna komnar upp í 167.900 á fyrsta þriðjungi ársins, samanborið við 125.300 á sama tímabili í fyrra. Jafngildir þetta aukningu upp á 34% á milli ára og er greinilegt að íslenski ferðaþjónstugeirinn hefur náð miklum árangri í að laða fleiri ferðamenn hingað til lands á jaðartíma. Þetta má sjá í tölum Ferðamálastofu Íslands um brottfarir gesta frá landinu um.Færri Íslendingar fara utan Færri Íslendingar héldu erlendis í apríl sl. en í sama mánuði í fyrra. Þannig námu brottfarir Íslendinga úr landi um Leifsstöð 28.100 nú í apríl, en þær höfðu verið 28.900 talsins á sama tíma í fyrra. Nemur fækkunin á milli ára þar með tæpum 3%. Sé takið mið af fyrstu fjórum mánuðum ársins nema brottfarir Íslendinga um Leifsstöð um 99.600 samanborið við 100.000 í fyrra, og er því lítilsháttar fækkun á milli ára. „Við teljum líklegt að þróunin á brottförum Íslendinga taki aðra stefnu á næstu mánuðum þannig að það fari að fjölga í hópi þeirra Íslendinga sem leggja land undir fót. Hér spilar eðlilega sú mikla styrking sem orðið hefur á gengi krónunnar, og þá að sama skapi kaupmætti landans á erlendri grundu, stóra rullu,“ segir í Morgunkorninu.
Mest lesið Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Framúrskarandi fyrirtæki Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Fleiri fréttir Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Sjá meira