Hagsjá: Krónan styrktist um 3,5% í apríl 6. maí 2013 13:45
Krónan hélt áfram að styrkjast í apríl og stóð gengi krónunnar á móti evru í 153 kr. í lok mánaðarins. Krónan styrktist um 3,5% frá marslokum og hefur styrkst um 10,3% frá áramótum þegar hún stóð í um 167 kr. Þetta kemur fram í Hagsjá riti hagfræðideildar Landsbankans. Þar segir að styrkingin var mun meira á móti dollaranum í apríl, eða um 6,7%. Síðan um áramót hefur krónan styrkst um 10,2% á móti dollaranum. Styrking krónunnar er gott innlegg í baráttunni við verðbólguna en síðri tíðindi fyrir útflutningsgreinarnar. Heildarvelta á millibankamarkaði í apríl var 9,6 milljarðar kr. eða 62 milljónir evra. Þetta er annar mánuðurinn í röð sem veltan minnkar milli mánaða, en til samanburðar var veltan 23,4 milljarðar kr. í febrúar og 15,5 milljarðar kr. í mars. Um þriðjungur veltunnar átti sér stað á einum degi, föstudaginn 5. apríl, þegar 23 milljónir evra skiptu um hendur. Þann dag styrktist krónan um tæp 2%. Stóru viðskiptabankarnir þrír, sem eru aðilar að millibankamarkaði á gjaldeyri, geta parað saman kaupendur og seljendur á gjaldeyri innanhúss og fara aðeins út á markaðinn ef ójafnvægi myndast innan síns viðskiptamannahóps. Minnkandi velta á gjaldeyrismarkaði síðustu mánuði þarf því ekki að vera merki þess að minni velta sé með gjaldeyri innanlands. Seðlabanki Íslands greip ekki inn í markaðinn í mánuðinum. Seinustu inngrip voru 8. mars þegar krónan stóð í um 165 á móti evru.
Mest lesið Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Framúrskarandi fyrirtæki Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Fleiri fréttir Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Sjá meira