Hvetur til lausnar á ágreiningi ráðuneyta um varnarmál 28. maí 2013 07:36
Ríkisendurskoðun hvetur forsætisráðuneytið til að beita sér fyrir lausn á ágreiningi milli utanríkisráðuneytis og innanríkisráðuneytis um stjórnsýslulegt forræði á verkefnum sem Varnarmálastofnun sinnti áður. Þetta kemur fram á vefsíðu Ríkisendurskoðunar. Þar segir að í ársbyrjun 2011 var Varnarmálastofnun lögð niður og verkefni hennar flutt til Landhelgisgæslunnar og Ríkislögreglustjóra. Varnarmálastofnun heyrði undir utanríkisráðuneytið en stofnanirnar sem tóku við verkefnum hennar heyra undir innanríkisráðuneytið. Í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar kemur fram að ætlunin hafi verið að flytja einnig stjórnsýslulegt forræði á verkefnunum til innanríkisráðuneytisins. Það hefur hins vegar ekki enn verið gert og er ástæðan m.a. sú að ágreiningur er milli ráðuneytanna um framtíðarskipan varnarmála. Ekki eru heldur í gildi formlegir samningar um verkefnin. Í skýrslunni kemur fram að þessi staða hamli því að sú hagræðing náist sem að var stefnt með niðurlagningu Varnarmálastofnunar. Þannig hafi stofnanir innanríkisráðuneytisins t.d. ekki getað samþætt varnartengd verkefni að fullu öðrum verkefnum sínum. Jafnframt er vandkvæðum bundið fyrir utanríkisráðuneyti að sinna lögbundnu eftirliti með verkefnunum því fjárveitingar vegna þeirra renna beint til fjárlagaliða innanríkisráðuneytisins. Ríkisendurskoðun hvetur forsætisráðneytið til að beita sér fyrir lausn á ágreiningi utanríkisráðuneytis og innanríkisráðuneytis um stjórnsýslulegt forræði á verkefnum fyrrum Varnarmálastofnunar. Í því sambandi bendir stofnunin á mikilvægi þess að stjórnsýsluleg, fjárhagsleg og fagleg ábyrgð fari saman og að valdmörk séu skýr.
Mest lesið Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Viðskipti innlent Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Viðskipti innlent Daníel Þór frá Kviku til Reita Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Viðskipti innlent Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Viðskipti innlent Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Neytendur Lite-æðið hafi Íslendinga að fíflum Neytendur Fleiri fréttir Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Sjá meira