„Ég á ekkert í þessum skíðaskála“ 20. nóvember 2013 20:49 Hannes Smárason mynd/heiða helgadóttir
Hannes Smárason segist ekkert eiga í skíðaskála í Frakklandi eins og sagt er frá á forsíðu DV í dag. Í yfirlýsingu sem lögmaður hans sendi fjölmiðlum nú í kvöld segir Hannes að hann eigi ekkert í skálanum, hvorki beint né í gegnum eignarhaldsfélög í skattaskjólum. Í frétt DV segir að Hannes eigi skálann, sem kosti tvo milljarða, ásamt Magnúsi Ármann. Þá segir Hannes að þeir Hannes þekki rekstur skálans, og að þeir hafi komið að rekstri hans, en að frétt DV snúist ekki um það. Fréttin sé röng og hún hafi "augljóslega ekki annan tilgang en að vera ærumeiðandi."Yfirlýsinguna má lesa í heild sinni hér að neðan:Í DV í dag er fullyrt að við Magnús Ármann eigum skíðaskála í Frakklandi – glæsihús sem kosti tvo milljarða. "Fréttin" er skrifuð af Inga Frey Vilhjálmssyni.„Fréttin“ er röng. Ég á ekkert í þessum skíðaskála, hvorki beint né „í gegnum eignarhaldsfélög í skattaskjólum“, eins og sagt er. Sama gildir um Magnús. Ég og Magnús þekkjum þessa eign og höfum komið að rekstri hennar, en „fréttin“ snýst ekki um það. Hvorugur okkar er eigandi, eins og áður segir, og ég kem ekki að rekstri þessarar fasteignar í dag.„Fréttin“ er röng og hefur augljóslega ekki annan tilgang en að vera ærumeiðandi, ekki síst í ljósi þess að „blaðamaðurinn“ vísar til viðtals við mig sem birtist nýlega, þar sem fram kom hjá mér að ég sé ekki eignamaður í dag.„Blaðamaðurinn“ hafði ekkert samband við mig við vinnslu „fréttarinnar“, sem er í takti við hans fyrri vinnubrögð. Hann hefur greinilega lítinn áhuga á að fara með rétt mál.Á tímabilinu 1. janúar 2009 til 16. nóvember sl. hefur DV fjallað um mig á forsíðum, vefriti og prentuðum greinum sem telja rúmlega 380 birtingar. Í flestum, ef ekki öllum, tilvikum undir neikvæðum formerkjum. Greinarskrifin standa ekki undir því að geta talist fréttir. Miklu fremur er um að ræða rangar frásagnir, meiðandi ummæli, rógburð, þrástef og „ekki-fréttir“. Undanfarið hafa flestar verið merktar „blaðamanninum“ Inga Frey Vilhjálmssyni. Ég leyfi mér að vísa skrifum hans um mig til föðurhúsanna.
Mest lesið Vilja „ósýnilegar“ stöðumælasektir burt Neytendur Falsaði fleiri bréf Viðskipti innlent Hætta við yfirtökuna Viðskipti innlent Veltir því upp hvort eigendum hafi verið refsað fyrir að tjá sig Viðskipti innlent Harpa og Linda ráðnar forstöðumenn Viðskipti innlent Hagnaðist um tæpar sjötíu milljónir króna Viðskipti innlent Íslenskur pítsastaður í Kína: „Það verður skrítnara og skrítnara að segja frá þessu“ Viðskipti innlent Stærsti samruninn í áraraðir á borð Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Þegar gott slúður í vinnunni gerir gagn Atvinnulíf Starbucks opnaði á Laugavegi í dag Viðskipti innlent Fleiri fréttir Falsaði fleiri bréf Veltir því upp hvort eigendum hafi verið refsað fyrir að tjá sig Hætta við yfirtökuna Harpa og Linda ráðnar forstöðumenn Stærsti samruninn í áraraðir á borð Samkeppniseftirlitsins Sylvía Kristín ráðin forstjóri Nova Íslenskur pítsastaður í Kína: „Það verður skrítnara og skrítnara að segja frá þessu“ Farþegum til landsins fjölgaði um tuttugu prósent Kvika hafi grætt töluvert á því að hafna upphaflegum tilboðum „Sem betur fer eru aðrir fiskar í sjónum“ Arion og Kvika í samrunaviðræður Eyþór hættur sem framkvæmdastjóri Hopp Svona munu stækkuð Skógarböð og hótel líta út Skrautleg saga laganna hans Bubba Sætta sig ekki við höfnun Kviku Hagnaðist um tæpar sjötíu milljónir króna Lofar bongóblíðu við langþráð langborð Minnstu sparisjóðirnir sameinast Spá 2,2 prósent hagvexti í ár Trausti Sigurður og Jóhanna nýir forstöðumenn hjá VÍS Sorglegt að þurfa að hætta rekstri eftir 38 ár í Hveragerði Starbucks opnaði á Laugavegi í dag Krefja nýjan rektor um að skólinn fari að lögum Svikarar nýti sumarfrí til að blekkja fyrirtæki til að millifæra háar upphæðir EFTA-ríkin gera fríverslunarsamning við Mercusor-ríkin Ná að spara hver mánaðarmót en hvað svo? Sjónvarpsstöðin Sýn verður í opinni dagskrá Nokkurra ára leit að kaupanda eigna í Helguvík lokið Rafbílasala tekur við sér en nær enn ekki fyrri hæðum Tillaga Vilhjálms felld með nánast öllum atkvæðum Sjá meira
Íslenskur pítsastaður í Kína: „Það verður skrítnara og skrítnara að segja frá þessu“ Viðskipti innlent
Íslenskur pítsastaður í Kína: „Það verður skrítnara og skrítnara að segja frá þessu“ Viðskipti innlent