Volkswagen í Danmörku kaupir helminginn í Heklu Lovísa Eiríksdóttir skrifar 9. júlí 2013 07:00 Kim Skovgaard Rasmussen, stjórnarformaður Heklu, Friðbert Friðbertsson, forstjóri Heklu, og Ulrik Schönemann, framkvæmdastjóri Volkswagen í Danmörku.
Danska hlutafélagið Semler, sem á og rekur Volkswagen-bifreiðar í Danmörku, hefur fest kaup á helmingshlut í Heklu hf. á Íslandi. Félagið notfærði sér fjárfestingaleið Seðlabanka Íslands við kaupin, en virði hlutarins er talinn nema um 1,1 milljarði króna. Friðbert Friðbertsson, forstjóri Heklu, mun áfram halda sínum helmingshlut í félaginu í gegnum eignarhaldsfélag sitt Riftún ehf. og segir hann söluna afar mikilvæga fyrir fyrirtækið. „Semler er gríðarlega öflugt fyrirtæki og það hefur mikla þýðingu fyrir okkur að vera komin með svona sterkt eignarhald,“ segir Friðbert og bætir við að hluthafaskiptin styrki einnig mannauð fyrirtækisins verulega. „Semler býr yfir mikilli reynslu og þekkingu sem á eftir að nýtast okkur vel til að efla starfsemi og rekstur fyrirtækisins.“ Friðbert segir að íslenskur bílamarkaður sé búinn að vera í mikilli lægð eftir hrunið árið 2008 og að batinn hafi farið mun hægar af stað en menn hafi reiknað með. Hann segist þó vera vongóður um framhaldið og telur kaup danska hlutafélagsins vera upphafið að endurreisninni. „Nýju eigendurnir þekkja þennan markað mjög vel og kaup félagsins sýna að þeir hafa trú á því að markaðurinn taki við sér bráðlega.“ Semler keypti hlut sinn í Heklu af athafnamanninum Franz Jezorski og fjölskyldu hans, en Franz og Friðbert hafa átt í töluverðum deilum frá því að þeir keyptu félagið saman árið 2011. „Við vorum ekki samstíga um starfsemi félagsins og því varð þetta niðurstaðan,“ útskýrir Friðbert, sem mun starfa áfram sem forstjóri félagsins.
Mest lesið Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Viðskipti innlent Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Viðskipti innlent Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Neytendur Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Viðskipti innlent Out of Office póstarnir: Þeir bestu og þeir glötuðustu Atvinnulíf Lite-æðið hafi Íslendinga að fíflum Neytendur Vekja athygli á innköllun leikfangs Neytendur Fleiri fréttir Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Sjá meira