Gallaðar reglur voru gróðaleið verktaka Lovísa Eiríksdóttir skrifar 4. júlí 2013 13:00 Verktakar og leiguaðilar notfærðu sér slæma umgjörð Íbúðalánasjóðs, að því er fram kemur í skýrslu Rannsóknarnefndar um Íbúðalánasjóð.
Fram kemur í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um málefni Íbúðalánasjóðs að sjóðurinn hafi tapað meira á lánum sínum til leiguaðila og byggingaverktaka heldur en til einstaklinga. Lán til þessara aðila voru fimmtungur af öllum lánveitingum sjóðsins en heimtur af þessum lánum voru mjög slæmar. Mikið af fé sem lánað var til leigufélaga má rekja til átaks sjóðsins árið 2001 um að auka framboð á leiguíbúðum.Gölluð umgjörðÁrið 2006 hætti sjóðurinn að krefjast bankaábyrgðar vegna lána til byggingaframkvæmda og kemur fram í skýrslunni að það hafi verið gert til þess að missa ekki viðskipti sín til bankanna. Í rannsóknarskýrslunni er bent á að umgjörðin um leigufélagalánin hafi verið illa hugsuð frá upphafi. Kröfur um eigið fé voru litlar og stundum var þeim ekki fylgt eftir. Dæmi eru um að leigufélög hafi fengið háar fjárhæðir að láni frá sjóðnum, án þess að eigendur þeirra hafi lagt fram viðeigandi fé. Allt fram undir árslok 2004 voru lánin hærra hlutfall af byggingarkostnaði en þegar lánað var til heimila.Byggðu tómar íbúðir Verktakar og leiguaðilar notfærðu sér slæma umgjörð sjóðsins. Íbúðalánasjóður lánaði leiguaðilum og byggingaverktökum allt að 90 prósent af viðmiðunarkostnaði húsnæðis án þess að kanna hvort forsenda væri fyrir slíkum byggingum. Íbúðalánasjóður bar nánast alla ábyrgð á fjárfestingunni þar sem ekki var krafist ábyrgðaryfirlýsingar frá viðurkenndri fjármálastofnun. Byggingaverktakar gátu smíðað íbúðir fyrir lægri fjárhæð en Íbúðalánasjóður miðaði við þar sem sjóðurinn reiknaði viðmiðunarverð á leiguhúsnæði út frá fjölda fermetra en ekki leiguverðs. Leigufélög, sem voru í eigu byggingaverktaka, gátu þannig grætt verulega á byggingu leiguíbúða óháð því hvort þörf væri á íbúðum eða hvort nokkur íbúð yrði leigð út.Stjórnendur brugðust Samkvæmt lögum átti Íbúðalánasjóður að fylgjast með íbúðaþörf í landinu en fram kemur í skýrslu rannsóknarnefndarinnar að stjórnendur sjóðsins hafi ekki sinnt því hlutverki sínu. Þótti stjórnendum að sjóðunum væri ekki heimilt að synja lánaumsóknum á grundvelli þess að ekki væri þörf á íbúðum ef lántakendur uppfylltu lágmarksskilyrði. Þetta viðhorf telur nefndin að beri vott um að hlutverk sjóðsins hafi frekar verið að deila út fé í stað þess að sjá til þess að það ávaxtaðist.Ekki var brugðist við athugasemdumSem dæmi þá stóðu leigufélög fyrir stórum hluta nýbygginga í Reykjanesbæ á fyrsta tug aldarinnar þegar íbúum þar fjölgaði mikið. Fólksfjölgunin hélt þó hvergi nærri í við fjölgun íbúða. Áfram var lánað til húsbygginga í bænum af töluverðum krafti fram á árið 2009 þrátt fyrir að fram hefði komið í úttekt sem gerð var fyrir sjóðinn sumarið 2008 að framboð á íbúðarhúsnæði í bænum væri „gríðarlegt“ miðað við fólksfjölda. Haustið 2012 sat Íbúðalánasjóður uppi með yfir 500 íbúðir í Reykjanesbæ og voru flestar auðar. Samkvæmt skýrslu rannsóknarnefndarinnar hefði sjóðurinn komist hjá þessum vanda ef hann hefði brugðist við þeim upplýsingum sem hann fékk sumarið 2008.Flétta verktakannaByggingaverktakar gátu grætt á lánakerfi Íbúðalánasjóðs, óháð eftirspurn á íbúðamarkaði. Til dæmis gat verktaki byggt húsnæði fyrir 85 prósent af kostnaðarviðmiði og rukkað síðan leigufélag – sem hann átti sjálfur – um 100 prósent af viðmiðinu og fengið 90 prósent af viðmiðinu sem lán frá Íbúðalánasjóði. Leigufélagið greiddi svo verktakanum andvirði lánsins og græddi 5 prósent af áætluðum byggingakostnaði. Þannig gat byggingaverktakinn sett leigufélagið í þrot og horfið á braut með gróðann en Íbúðalánasjóður sat uppi með byggingu sem enginn hafði á áhuga á að búa í.Sigurður ErlingssonUnnið að reglugerðumSigurður Erlingsson, forstjóri Íbúðalánasjóðs, fullyrðir að lánveitingar til lögaðila hafi gjörbreyst og að skýrslan lýsi ekki núverandi ástandi. Reglugerðabreyting um lánveitingar til leiguaðila hefur þó ekki gengið í gegn, en hún byggist á breytingu sem gerð var í lögum um húsnæðismál sem samþykkt voru á Alþingi 2012. Þar voru lánveitingar til leigufélaga þrengdar töluvert. Þau svör bárust frá velferðaráðuneyti að ráðuneytið og Íbúðalánasjóður hafa unnið saman að gerð reglugerðarinnar sem var send Sambandi sveitarfélaga til umsagnar fyrir nokkru og er ráðuneytið nú sé ráðuneytið að vinna hörðum höndum að breytingunni.
Mest lesið Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Viðskipti erlent Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Sjá meira