Vilja flytja inn erfðaefni nauta Óli Kristján Ármannsson skrifar 4. júlí 2013 13:28 Angus naut í Argentínu. Starfshópur vill láta kanna hvort koma megi hér upp sérstöku ræktunarbúi til þess að byggja hér upp hreinræktaðan stofn Aberdeen Angus nautgripa. Nordicphotos/AFP
Þegar á að hefjast handa um að skapa aðstöðu til að flytja inn nýtt erfðaefni til innblöndunar í íslenska holdanautastofninn. Þetta er meðal þess sem starfshópur um eflingu nautakjötsframleiðslunnar leggur til. Landssamband kúabænda telur afar brýnt að unnið verði hratt og skipulega að því að hrinda tillögum hópsins í framkvæmd. Frá því er greint á vef Landssambands kúabænda að hópurinn, sem var skipaður af atvinnuvegaráðherra í mars, hafi skilað ráðherra skýrslu sinni á þriðjudag. „Starfshópurinn telur að flytja eigi inn erfðaefni af holdakyninu Aberdeen Angus og á síðari stigum verði kannaðir möguleikar á innflutningi á erfðaefni Limousin gripa,“ segir í tillögunum. Lagt er til að erfðaefnið verði flutt inn frá Noregi í samvinnu við ræktunarfélög þar í landi. Um leið er lögð til ítarleg áhættugreining varðandi fyrirkomulag innflutnings á erfðaefni. Sérstaklega á því hvort unnt verði að leyfa innflutning sæðis beint til einstakra bænda. Þá vill hópurinn að þegar verði hafinn undirbúningur að upptöku á nýju kjötmati, með það að markmiði að innleiðing þess geti hafist í ársbyrjun 2014. „Gerð verði úttekt á stöðu allra hjarða sem stunda nautakjötsframleiðslu sem aðalbúgrein og metið hvaða aðgerðir skila mestum árangri. Ráðgjafamiðstöð landbúnaðarins er hvött til þess að koma á laggirnar skipulagðri ráðgjafarþjónustu við nautakjötsframleiðendur,“ segir jafnframt í tillögunum. Sömuleiðis er sagt að gera verði gangskör að því að efla og bæta skýrsluhald í greininni og það verði gert að skilyrði fyrir því að fá innflutt erfðaefni til notkunar í viðkomandi hjörð. Skýrsluhaldsforritið HUPPA verði aðlagað að þörfum nautakjötsframleiðenda. Starfshóp ráðherra skipuðu Magnús B. Jónsson, formaður sem tilnefndur var af ráðherra, Sigurður Loftsson, tilnefndur af Landssambandi kúabænda, Guðný Helga Björnsdóttir, tilnefnd af Bændasamtökum Íslands og Sigurður Jóhannesson, tilnefndur af Landssamtökum sláturleyfishafa. Á starfstíma hópsins hvarf Sigurður Jóhannesson til annarra starfa og tók þá Sigmundur Ófeigsson við sæti hans. Baldur Helgi Benjamínsson, framkvæmdastjóri LK starfaði með hópnum. Samkvæmt skipunarbréfi var hlutverk hópsins að móta tillögur um hvernig skuli standa að innflutningi á erfðaefni; gera tillögur að kynbótaskipulagi; koma með tillögu að nýju kjötmati; móta tillögur um hvernig megi stuðla að aukinni fagmennsku í nautakjötsframleiðslunni. Frekari umfjöllun og hlekk á skýrsluna sjálfa er að finna á vef Landsambands kúabænda.
Mest lesið Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Viðskipti innlent Verðbólga eykst lítillega Viðskipti innlent Þórunn og Svali til Íslandsbanka Viðskipti innlent Rukka ekki lengur foreldra fyrir að sitja við hlið barna sinna Viðskipti erlent Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Viðskipti innlent „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Viðskipti innlent Einungis sjö bílar kallaðir inn Neytendur Missir stöðu sína sem eini billjónamæringur heims Viðskipti erlent Súkkulaði hækkað um tæpan þriðjung á tveimur árum Neytendur Fleiri fréttir Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Samkeppnishæfni Íslands og annarra Norðurlanda fellur milli ára Þróunin í þá átt að verða enn meiri kaupendamarkaður Sjá meira