Íbúðaverð hækkar - er á pari við húsnæðisverð árið 2004 Valur Grettisson skrifar 4. júlí 2013 13:54 Íbúðaverð á landinu hækkaði um 0,86% að nafnvirði og 0,3% að raunvirði milli maí og júní samkvæmt nýlegum tölum Hagstofunnar. Hefur húsnæðisverð þá hækkað um 3,4% á þriðja ársfjórðungi og raunverðið um 2,7%. Þetta kemur fram í morgunkorni Íslandsbanka. Mynd/Vilhelm
Íbúðaverð á landinu hækkaði um 0,86% að nafnvirði og 0,3% að raunvirði milli maí og júní samkvæmt nýlegum tölum Hagstofunnar. Hefur húsnæðisverð þá hækkað um 3,4% á öðrum ársfjórðungi og raunverðið um 2,7%. Þetta kemur fram í morgunkorni Íslandsbanka. Svo mikil hækkun á raunverði íbúðarhúsnæðis á einum ársfjórðungi hefur ekki mælst síðan á árinu 2007. Þessi mikla hækkun húsnæðisverðs á öðrum fjórðungi kemur í kjölfar þess að húsnæðisverð var nær óbreytt að nafnvirði yfir fyrsta fjórðung og lækkaði þá um 2,1% að raunvirði. Nafnverðið hefur hækkað um 20% síðan það var lægst eftir hrun í mars 2010. Raunverð íbúðarhúsnæðis hefur hins vegar hækkað mun minna enda talsverð verðbólga verið á tímabilinu. Hefur það hækkað um 5,4% síðan það var lægst eftir hrun, í apríl 2010. Bæði velta og fjöldi kaupsamninga á húsnæðismarkaði á höfuðborgarsvæðinu hefur meira en þrefaldast frá fyrstu 6 mánuðum ársins 2009 til fyrstu 6 mánaða ársins 2013. Veltan og fjöldi kaupsamninga hefur aukist nær samfellt frá árinu 2009 samhliða hækkun íbúðaverðs. Íbúðaverð í fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu hefur hækkað um 23% að nafnvirði og í einbýli um 17% að nafnvirði frá því það var lægst árið 2010. Frá því að raunvirði íbúðaverðs var hæst í lok árs 2007 hefur það lækkað um rúm 30%. Í því samhengi er vert að hafa í huga að í október 2007 var verðbóla á íslenska íbúðamarkaðnum sem olli tímabundinni hækkun. Íbúðaverð nú er svipað og það var árið 2004 að raunvirði.
Mest lesið Bensínlítrinn hefur hækkað á ný Neytendur Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Viðskipti innlent Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent „Það þýðir ekki að pissa í skóinn sinn“ Neytendur Arion hækkar vexti á ný Viðskipti innlent Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Viðskipti innlent Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Viðskipti innlent Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Viðskipti innlent Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Viðskipti innlent Bensínverð hækkar aftur á morgun Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sjá meira
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent