Íslenskar útgerðir kaupa tvö norsk skip Óli Kristján Ármannsson skrifar 19. september 2013 04:00 Línuveiðiskipið Anna AE 305 í höfn á Akureyri. Í ágúst keypti Samherji skipið, sem þá hét Carisma Star, af útgerð í sveitarfélaginu Vogsey í Noregi. Nú hefur annað skip aðeins minna verið selt þaðan til Íslands. Mynd/Samherji
Síðustu vikur hafa tvö línuveiðiskip verið seld til Íslands frá sveitarfélaginu Vogsey (Vågsøy) í Noregi. Nú síðast var gengið frá sölu á skipinu Polarbris til Hraðfrystihúss Hellissands. Að sögn Ólafs Rögnvaldssonar, framkvæmdastjóra og eiganda Hraðfrystihússins, er von á skipinu um miðjan nóvember. Polarbris er smíðað árið 1999, 43 metra langt og 9 metra breitt. Skipið er aðeins minna og tveimur árum eldra en línuveiðiskipið Carisma Star sem Samherji keypti í ágúst frá Vogsey. Það skip, sem nú hefur fengið nafnið Anna AE 305, er 52 metra langt og 11 metra breitt. Kaupverð skipanna hefur ekki verið gefið upp en gefa má sér að um allmikla fjárfestingu sé að ræða. Heimildir blaðsins herma þó að samanlagt geti kaupverð skipanna verið nálægt tveimur milljörðum króna. Verð á nýlegu vel til höldnu skipi af þessari stærð geti verið frá 8 til 900 hundruð milljónir og farið vel yfir milljarð króna. Seljendur skipanna eru norsku útgerðirnar Carisma Fish og Atlantic Seafish.um borð Carisma Star, nú Anna AE, fékk gagngera yfirhalningu árið 2008. Mynd/SamherjiÓlafur segir kaupin hafa gengið nokkuð hratt fyrir sig og að skipið komi í staðinn fyrir annað eldra sem hætt verði að nota. „Staðreyndin er sú að íslenski skipaflotinn er orðinn svo gamall að hann er að stórum hluta ekki á vetur setjandi,“ segir hann. „Og botnfiskveiðiskipin eru mörg mjög gömul.“ Meðalaldur stærri skipa íslenska flotans er talinn vera um og yfir 30 árum. Skipin frá Vogsey yngja því flotann, 12 og 14 ára gömul. „En auðvitað eru alltaf dálítil tímamót þegar það er endurnýjað. Síðast keypti ég skip frá Noregi árið 2008.“ Ólafur segir að áður en farið verði að gera nýja skipið út þurfi samt að gera á því nokkrar breytingar til að laga það að íslenskum aðstæðum og regluverki. „Það er svo merkilegt að ekki er sami björgunarbúnaðurinn í íslenskum skipum og norskum,“ segir hann. Jafnframt þurfi að uppfæra kælikerfi skipsins þannig að hætt verði að nota freon til kælingar og ammoníak notað í staðinn. Vogsey er um 80 kílómetra suðvestur af Álasundi. Í umfjöllun NRK í Noregi er bent á að með skipunum tveimur fari 64 störf. Í viðtali við NRK segist Kåre Furnes, einn eigenda Atlantic Seafish sem seldi Polarbris, vona að þeir 30 sem missa hjá þeim vinnuna finni störf annars staðar. „Þetta er fín áhöfn og alltaf vinnu að fá fyrir gott fólk,“ segir hann. Óráðið sé hvað gert verði við kvótann, eða hvort keyptur verði nýr bátur.
Mest lesið Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Viðskipti erlent Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Viðskipti innlent Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Sjá meira