Viðskipti innlent

Þjónustujöfnuðurinn jákvæður um 32 milljarða í fyrra

Samkvæmt bráðabirgðatölum var útflutningur á þjónustu rúmlega 379 milljarðar í fyrra en innflutningur á þjónustu 347 milljarðar. Þjónustujöfnuður við útlönd var því jákvæður um 32 milljarða í fyrra en hann var 41,6 milljarðar árið áður á gengi hvors árs.

Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að samgöngur skiluðu 74,2 milljarða kr. afgangi í fyrra og ferðaþjónusta 8,0 milljarða kr. afgangi samkvæmt bráðabirgðatölum. Á móti kom að halli var á annarri þjónustu um 50,0 milljarða kr.

Útflutningur á þjónustu á fjórða ársfjórðungi 2012 var, samkvæmt bráðabirgðatölum, 83,6 milljarðar króna en innflutningur á þjónustu 90,4 milljarðar. Þjónustujöfnuður við útlönd var því neikvæður um 6,8 milljarða króna á fjórða ársfjórðungi en 4,8 milljarða á sama tíma 2011 á gengi hvors árs.

Samgöngur er stærsti þjónustuliður í útflutningi og afgangur vegna þeirrar þjónustu var 11,7 milljarðar. Önnur þjónusta er stærsti liður í innflutningi og nam halli á þeirri þjónustu 10,4 milljörðum. Halli á ferðaþjónustu var 8,1 milljarður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×