Hótelerfinginn Paris Hilton lætur sig ekki vanta á kvikmyndahátíðina í Cannes. Hún hefur varið tímanum vel á hátíðinni með kærasta sínum River Viiperi.
Paris, 31 árs, og River, 21 árs, skelltu sér út á lífið á laugardagskvöldið og héldu upp á eins árs sambandsafmæli sitt. Ástin virðist blómstra hjá parinu og hafa sögusagnir gengið manna á milli að trúlofun sé í vændum eftir að River kallaði Paris framtíðareiginkonu sína á Twitter.

“Kærasta mín, framtíðareiginkona mín, lífið mitt, já! Ótrúlega ljóskan mín Paris Hilton #1Ár #FyrirLífstíð,” skrifaði River á samfélagsmiðilinn.

