Ferðamannamet í desember, 2012 stærsta ferðamannaárið 16. janúar 2013 07:19
Árið 2012 var langstærsta ferðamannaár í sögu landsins, en á árinu í heild fóru 649.900 erlendir ferðamenn frá landinu um Leifsstöð. Jafngildir þetta aukningu upp á 20% á milli ára, eða sem nemur 106.100 erlendum ferðamönnum. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að í desember sl. fóru 28.000 erlendir gestir frá landinu um Leifsstöð, sem er aukning upp á 34% frá sama tíma árið á undan. Er hér um að ræða stærsta desembermánuð frá upphafi í fjölda þeirra, líkt og var í hverjum einasta mánuði á síðasta ári. Meginþorri erlendra gesta sem kemur til landsins fer um Leifsstöð, eða um 96% samkvæmt mati Ferðamálastofu. Um 12.800 erlendir ferðamenn komu hingað til lands með Norrænu. Gefur Ferðamálastofa sér að bæta megi við 2% í viðbót sem koma um aðra flugvelli, þ.e. Reykjavík, Egilsstaði og Akureyri, þ.e. að því gefnu að umferð þar hafi verið svipuð og hún var 2011. Hafi svo verið raunin á síðastliðnu ári má ætla að fjöldi erlendra gesta hafi verið um 673 þúsund. Í desember nam kortavelta útlendinga hér á landi 3,8 milljörðum kr. og jókst um 41% að nafnvirði frá sama tíma árið á undan. Sé litið á árið 2012 í heild þá nam kortavelta erlendra aðila hér á landi 75,0 milljörðum kr. og jókst um 21% að nafnvirði frá árinu 2011. Vart þarf að koma á óvart að kortavelta erlendra aðila hefur aldrei áður verið svo mikil hér á landi, enda er þessi gríðarlega aukning í takti við tölur, að því er segir í Morgunkorninu.
Mest lesið Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Neytendur Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Viðskipti innlent Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Viðskipti innlent Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Viðskipti innlent Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Sjá meira