Veiking krónunnar þrátt fyrir höft „alvarleg“ Magnús Halldórsson skrifar 16. janúar 2013 19:55 Haraldur Flosi Tryggvason.
Miklir hagsmunir eru undir ef krónan heldur áfram að veikjast, eins og hún hefur gert að undanförnu. Stjórnarformaður Orkuveitunnar segir afar óheppilegt að búa við þann óstöðugleika sem einkennir gjaldeyrismarkað hér, þrátt fyrir höft, en Orkuveitan er eitt þeirra fyrirtækja sem á mikið undir því að krónan veikist ekki, vegna mikilla skulda í erlendri mynt. Á síðustu vikum hefur gengi íslensku krónunnar verið að veikjast jafnt og þétt. Eins og fréttastofa hefur greint frá, veiktist gengið sérstaklega milli jóla og nýárs, eða um tæplega þrjú prósent á fimm viðskiptadögum. Seðlabankinn vann gegn veikingunni með inngripum upp á sex milljónir evra, eða ríflega milljarð króna. Þrátt fyrir inngrip seðlabankans á Gamlársdag, þá hefur gengi krónunnar gagnvart evru haldist áfram að veikjast og, en samkvæmt opinberu gengi Seðlabanka Íslands er nú hægt að fá 171,4 krónur fyrir hverja evru. Um mitt síðasta ár var hægt að fá 157 krónur fyrir hverja evru. Haraldur Flosi Tryggvason, stjórnarformaður Orkuveitunnar, segir það vera alvarlegt mál hver mikill óstöðugleiki er á gjaldeyrismarkaði þrátt fyrir höftin, en Orkuveitan á mikla hagsmuni af því að krónan styrkist, en skuldir fyrirtækisins í erlentum myntum, hækka um milljarða í krónum talið fyrir hvert prósentustig sem krónan fellur í verði, en tekjur fyrirtækisins eru að mestu í krónum. „Það er almennt talað, mjög óheppilegt fyrir fyrirtæki eins og Orkuveituna að búa við jafn mikinn óstöðugleika á gjaldeyrismarkaði og er á Íslandi, og það er slæmt að vera með þannig gjaldmiðilinn að hann sveiflast mikið, og það á við um öll fyrirtæki held ég [...] Ef að krónan veikist, þá hækka skuldir Orkuveitunnar í krónum, og fyrirtækið má síst við því."
Mest lesið Gervigreindin geti verið lykillinn að tollalækkun Viðskipti innlent Besti fjórðungurinn í sögu Alvotech Viðskipti innlent Hætt sem framkvæmdastjóri Klíníkurinnar Viðskipti innlent Fríhöfnin endurhönnuð í anda íslenskrar náttúru Viðskipti innlent Óskar úr fjarskiptum í fiskinn Viðskipti innlent Sögulegur hagnaður á samrunatímum Viðskipti innlent Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Stækka hótelveldið á Suðurlandi Viðskipti innlent Óskar eftir starfslokum Viðskipti innlent Framtíð tannlækninga og gervigreindar – kynntu þér Oraxs Samstarf Fleiri fréttir Fríhöfnin endurhönnuð í anda íslenskrar náttúru Gervigreindin geti verið lykillinn að tollalækkun Besti fjórðungurinn í sögu Alvotech Sögulegur hagnaður á samrunatímum Óskar úr fjarskiptum í fiskinn Hætt sem framkvæmdastjóri Klíníkurinnar Lægri tollar á samkeppnisríkin veiki stöðuna svo um munar Atvinnuleysi eykst hægt með lækkandi sól Almannatenglar stofna fjölmiðil Lánshæfið hækkar úr stöðugu í jákvætt Fleiri ferðamenn og fleiri utanlandsferðir Skilur ekkert í stjórnvöldum að hafa ekki stöðvað „græðgisvæðingu“ í bílastæðamálum Stækka hótelveldið á Suðurlandi Óskar eftir starfslokum „Ekkert Viking eða Gull“ á nýjum stað í B5 Segir ofboðslegan undirliggjandi þrýsting á fasteignamarkaði Reikna með að skila hagnaði á næsta ári Frá Gamma til Arctica og nú Seðlabankans Atvinnuleysi 2,8 prósent í júní Trump-tollarnir hafa tekið gildi Ísland klemmist á milli í alþjóðlegu tollastríði Vonbrigði með makrílinn en síldin og loðnan veki von Ráðin framkvæmdastjóri Magio – viðburðasmiðju Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Alaska Airlines hefur daglegt flug til Keflavíkur næsta sumar Vefur og app Íslandsbanka lágu niðri Tímabundin dreifing á sjónvarpsefni Sýnar hjá Símanum Hækkun tolla eins og þruma úr heiðskíru lofti Forstjóraskipti hjá Ice-Group Kísiltollar gætu vel endað fyrir gerðardómi Sjá meira