170 milljónir í bústað fyrir ræðismann Samúel Karl Ólason skrifar 7. nóvember 2013 10:50 Alræðisskrifstofan í Nuuk er staðsett í þessu húsnæði. Rekstur þess kostar 55 milljónir króna á næsta ári.
Utanríkisráðuneytið hefur auglýst eftir húsnæði fyrir embættisbústað aðalræðsmanns Íslands á Grænlandi í blöðum í Nuuk og á Facebook síðu aðalræðisskrifstofunnar. Samkvæmt auglýsingunni verður það að vera á bilinu 250 til 350 fermetra stórt og 170 milljónir eru eyrnamerktar bústaðnum í fjárlagafrumvarpinu. Frá þessu er sagt í Viðskiptablaðinu í dag. Bústaður þessi er eingöngu hugsaður sem íbúðarhús fyrir aðalræðismanninn. Aðalræðisskrifstofan er í litlu húsnæði við höfnina í Nuuk. Þar starfa tveir starfsmenn og gert er ráð fyrir að reksturinn kosti 55 milljónir á næsta ári. Skrifstofan var opnuð í sumar. Í samtali við Viðskiptablaðið segir Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra að opnun skrifstofunnar tengist stefnumótun sem var samþykkt á Alþingi þar sem gert er ráð fyrir því að Vestnorræna samstarfið sé styrkt. Að mikið mikil eftirspurn sé hjá Íslendingum eftir því að komast til Grænlands og vinna þar að þjónustu og fleira. Í því samhengi muni skrifstofan nýtast vel. Hann segir skiljanlegt að fólk velti fyrir sér þessum kostnaði og hann telji sjálfur kostnaðinn mikin. Kostnaðinn við rekstur skrifstofunnar telur hann innan marka. "Varðandi húsakost þá er ekki um auðugan garð að gresja á Grænlandi. Við skoðuðum að byggja hús en það var talið allt of dýrt. Við höfum reynt að fá húsnæði leigt en það er bara ekki hægt að fá húsnæði sem uppfyllir þær kröfur að vera bæði fjölskyldubústaður og vinnustaður eða embættisbústaður um leið," segir Gunnar í Viðskiptablaðinu. Ræðismaðurinn á að geta tekið á móti fólki í húsinu og verið með uppákomur þegar þarf. „Niðurstaðan varð sem sagt að kaupa húsnæði. Þá er staðan sú að fasteignaverð á Grænlandi er töluvert hærra en í Reykjavík og það eru ýmsar ástæður fyrir því. Það má hins vegar ekki gleyma því að þessi kostnaður mun mynda eign á móti í Ríkissjóði." Enn hefur ekki fundist hentugt húsnæði fyrir embættismannabústaðinn.
Mest lesið Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Viðskipti innlent Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent Arion hækkar vexti á ný Viðskipti innlent „Það þýðir ekki að pissa í skóinn sinn“ Neytendur Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Viðskipti innlent Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Viðskipti innlent Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Viðskipti innlent Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Viðskipti innlent Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Viðskipti innlent Bensínverð hækkar aftur á morgun Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sjá meira
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent