Launagreiðslur að ná því sem var 2004 Óli Kristján Ármannsson skrifar 29. október 2013 07:00 Í gögnum Ríkisskattstjóra kemur fram að færri telji nú fram atvinnuleysisbætur. Ástandið sé þó langt frá því að vera viðunandi. Ekki sé ólíklegt að einhverjir hafi misst réttinn til bóta og hafi því neyðst til að leita annarra úrræða. Fréttablaðið/Stefán
Laun og starfstengdar greiðslur fólks árið 2012 eru rétt undir því sem gerðist árið 2004. Þetta er meðal þess sem lesa má út úr tölum í nýjasta hefti Tíundar, fréttablaðs Ríkisskattstjóra. Í samantekt um niðurstöður álagningar á þessu ári vegna síðasta árs eru birtar tölur um tekjuskatts- og útsvarsstofn aftur til ársins 2004, allt á verðlagi ársloka 2012. Þar kemur meðal annars í ljós að meðallaunatekjur fólks á síðasta ári námu 95,9 prósentum af tekjum fólks á árinu 2004 og 83,6 prósentum af tekjum fólks árið 2007 þegar efnahagsbólan náði hér hámarki. Mánaðarleg meðallaun voru í fyrra rúmar 343 þúsund krónur samanborið við rétt rúmar 358 þúsund krónur árið 2004 og tæpar 411 þúsund krónur árið 2007, allt á verðlagi miðað við árslok 2012. „Framtöl einstaklinga bera enn vitni um þau umskipti sem urðu í íslensku efnahagslífi fyrir fimm árum,“ segir í samantekt Páls Kolbeins í Tíund, en hann annast birtingu skattatölfræði hjá Ríkisskattstjóra. „Engu að síður eru ákveðin merki um að ýmislegt horfi nú til betri vegar og að botninum hafi verið náð 2010.“ Páll bendir á að launagreiðslur hafi aukist á sama tíma og greiðslur úr séreignarsjóðum hafi lækkað. Þá hafi matsverð eigna hækkað á sama tíma og skuldir hafi lækkað og eigið fé einstaklinga aukist. Skattstofnar hafi almennt vaxið og skatttekjur aukist. „Þó að ekki sé hægt að tala um gagngera breytingu ætti alltént að vera óhætt að segja að þróun síðustu tveggja ára sé í rétta átt.“ Í umfjöllun Tíundar kemur jafnframt fram að nokkuð hafi dregið úr greiðslum séreignarlífeyrissparnaðar til fólks sem þó er ekki komið á lífeyrisaldur. Ákveðið var eftir hrunið 2008 að heimila slíkar greiðslur séreignarsparnaðar til að fólk fengi betur mætt áhrifum efnahagsáfallsins. „Frá árinu 2009 hafa þeir sem ekki voru búnir að ná lífeyrisaldri tekið út 78,2 milljarða séreignarsparnaðar,“ segir í Tíund. Þá eru laun ekki það eina sem er á svipuðu róli og var árið 2004. Í umfjöllun í nýjasta hefti efnahagsritsins Vísbendingar kemur fram að skuldir heimilanna standi nú í 121 prósenti af vergri landsframleiðslu, sem sé svipað og árið 2004. Margir muna eftir því þegar Bill Clinton fékk sér pylsu í Reykjavík í heimsókn hans og Hillary til landsins árið 2004. Fréttablaðið/GVAHvað gerðist árið 2004?Sé það svo að efnahagsástandið nú sé um margt líkt því sem var árið 2004 er ekki úr vegi að rifja aðeins upp hvað var efst á baugi það ár.2004 hefur af einhverjum verið nefnt ár fjölmiðlafrumvarpsins, en þá beitti Ólafur Ragnar Grímsson synjunarvaldi sínu á lög sem meðal annars settu eignarhaldi á fjölmiðlum skorður.Annan í jólum sama ár urðu líka mannskæð flóð eftir jarðskjálfta í Indlandshafi. Í kjölfar skjálftanna varð eitt mesta manntjón sem um getur á friðartímum.Morðið á Sri Sahmawati var eitt stærsta fréttamál ársins hér heima, dómar féllu í líkfundarmálinu og Bill Clinton, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, fékk sér pylsu í Reykjavík.Þórólfur Árnason sagði af sér sem borgarstjóri í Reykjavík eftir að skýrsla Samkeppnisstofnunar um samráð olíufélaga kom út og dómar féllu í Landssímamálinu.Landið sóttu meðal annars heim til tónleikahalds Metallica, Sugababes, Pink, Pixies, Kraftwerk, James Brown, Stranglers og Prodigy.
Mest lesið Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Viðskipti innlent Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Viðskipti erlent Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Viðskipti innlent Fleiri fréttir Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Sjá meira