Hagnaður Landsbankans 8 milljarðar á fyrsta ársfjórðungi 24. maí 2013 07:26
Rekstrarhagnaður Landsbankans nam 8,0 milljörðum króna eftir skatta á fyrsta ársfjórðungi ársins 2013, samanborið við 7,7 milljarða króna á sama tímabili í fyrra. Arðsemi eigin fjár á tímabilinu eftir skatta var 14,0% samanborið við 15,2% arðsemi á sama tíma á árinu 2012. Eiginfjárhlutfall bankans hefur aldrei verið hærra og nam það 26,6% í lok mars 2013 en var 22,1% á sama tíma á síðasta ári. „Helstu tíðindi hjá bankanum að undanförnu er án efa uppgjör Landsbankans hf. við LBI hf. Með þessu uppgjöri náðist mikilsverður áfangi í uppbyggingu bankans og um leið varð breyting á eignarhaldi sem skilar sér í miklum ávinningi fyrir ríkissjóð,“ segir Steinþór Pálsson, bankastjóri í tilkynningunni. „Eignarhlutur ríkisins í Landsbankanum hefur nú hækkað um tæplega 62 milljarða króna umfram fjármagnskostnað þegar litið er á bókfærða stöðu eigin fjár bankans í lok þriðja ársfjórðungs.“ Steinþór segir einnig að Landsbankinn hafi áfram styrkt sína stöðu á þessum fjórðungi, arðsemi eigin fjár er vel viðunandi, eiginfjár- og lausfjárhlutföll eru sterk í alþjóðlegum samanburði og síðast en ekki síst hefur tekist að lækka rekstrarkostnað bankans eins og stefnt hefur verið að. Bankinn greiðir nú arð í fyrsta sinn frá stofnun hans og stendur mjög vel undir þeirri greiðslu. Staða bankans er því traust og óvissuþáttum í rekstrinum fækkar jafnt og þétt.
Mest lesið Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Viðskipti innlent Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Viðskipti innlent Daníel Þór frá Kviku til Reita Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Viðskipti innlent Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Viðskipti innlent Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Neytendur Lite-æðið hafi Íslendinga að fíflum Neytendur Fleiri fréttir Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Sjá meira