Suzuki áreiðanlegastur 24. maí 2013 14:15 Suzuki Grand Vitara
Suzuki er áreiðanlegasti bíllinn að mati þeirra sem gáfu bílum sínum einkunn á heimasíðu sænskrar útgáfu Auto Motor & Sport. Niðurstöðurnar eru kynntar í nýjasta tölublaði tímaritsins og eiga við um bíla sem eru fimm ára eða yngri. Alls lögðu 25.000 bíleigendur mat á sinn bíl á vef tímaritisins, www.automotorsport.se. Fyrir tveimur árum birti tímaritið niðurstöður fyrir árin 2006-2010 og trónaði Lexus þá á toppnum yfir áreiðanlegustu bílana. Merkið fellur hins vegar um fimm sæti og er samkvæmt niðurstöðunni í 6. sæti nú. Niðurstöðurnar eru mældar á kvarða sem hæst getur orðið 100. Lexus féll úr 96 stigum í 93. Efst trónir nú Suzuki sem fær einkunnina 97 og hækkaði sig um 5 stig frá fyrri könnun. Á óvart kemur að Alfa Romeo, sem oft sleikir botninn í könnunum af þessu tagi, er í öðru sæti með 95 stig og hækkaði sig um 5 stig milli kannana eins og Mazda, sem er í þriðja sæti með 94 stig. Á botninum eru síðan Cadillac, Kia og Chevrolet. Fimm efstu: 2008–2012 1. Suzuki 97 + 5 stig. 2. Alfa Romeo 95 + 5 stig. 3. Mazda 94 + 5 stig. 3. Mitsubishi 94 ± 0 stig. 3. Seat 94 + 7 stig. Fimm neðstu: 1. Cadillac 76 - 2 stig. 2. Kia 81 - 5 stig. 3. Chevrolet 82 - 4 stig. 3. Volvo 82 + 6 stig. 5. Citroën 83 + 4 stig.
Mest lesið „Ég læt ekki stilla mér svona upp við vegg“ Innlent Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Erlent Tókst á við umdeilda rabbínann: „Þú ert hættulegur maður“ Innlent Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Innlent Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Erlent Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Erlent Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Erlent Tilkynnt um alblóðugan mann á gangi í miðborginni Innlent Vara við að erlendir aðilar gætu náð yfirráðum yfir íslenskum sjávarútvegi Innlent Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Erlent