Viðskipti innlent

Kaupmáttur nær stóð í stað í apríl

Vísitala kaupmáttar launa í apríl er 113,8 stig og hækkaði um 0,05% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa hækkað um 2,4%.

Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir einnig að launavísitala í apríl 2013 er 456,4 stig og hækkaði um 0,2% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 5,8%.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×