Eignarhald Landsbankans á fyrirtækjum í óskyldum rekstri Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 15. nóvember 2013 19:00 Landsbankinn á hluti í nokkrum stórum rekstrar-, eignarhalds- og fasteignafélögum. Mynd/Pjetur
Landsbankinn hefur sent frá sér tilkynningu um eignarhald sinn á fyrirtækjum í óskyldum rekstri. Í henni segir að eignarhaldið hafi verið nokkuð til umræðu opinberlega að undanförnu og því gjarnan haldið fram að það eignarhald standi yfir í of langan tíma og skaði þannig heilbrigða samkeppni á markaði. Segir að bankinn hafi á síðustu árum þurft að taka yfir töluvert af eignum til að verja sínar kröfur en bankinn hafi lagt áherslu á að losa slíkar fullnustueignir út eins hratt og kostur er. Bankinnn hafi þurft að fá ásættanlegt verð í samræmi við stína stefnu. Markvisst hafi verið unnið að sölu eigna í óskyldum rekstri og sést sú stefna vel þegar litið er til þess að eignir í sölu hafa lækkað um rúma 100 milljarða króna frá árslokum 2010 þegar sá eignaliður stóð í 128 milljörðum króna í bókum bankans. Bankinn vill koma á framfæri upplýsingum um núverandi eign sína og dótturfélaga sinna í fyrirtækjum í óskyldum rekstri. Þannig eigi bankinn í dag og dótturfélög hans virkan eignarhlut í þremur stórum rekstrar- og fasteignafélögum, sem bankinn hyggst selja á næstu misserum. Þessi félög eru:Ístak hf. - tilkynnt verður um fyrirkomulag sölu í þessum mánuði.Promens hf., - hafinn er undirbúningur að skráningu Promens á markað og stefnt að skráningu fyrir lok næsta árs.Reitir hf., - bankinn vinnur fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins og stefnt er að skráningu á félaginu í kauphöll á fyrri hluta næsta árs. Þá á Landsbankinn einnig hlut í þremur stórum eignarhaldsfélögum sem eru:FSÍ slhf., - yfirlýst markmið bankans er að minnka eignarhlut sinn í félaginu og vinnur að sölu á hluta hans.Eyrir hf., - hlutur bankans er til sölu.Stoðir hf., - stefnt er að sölu á eignarhluta bankans á næsta ári. Landsbankinn á einnig nokkurn fjölda fasteigna sem tengist fullnustu krafna. Í einstaka tilvikum eru slíkar eignir vistaðar í sérstökum félögum vegna eðlis þeirra, t.d. vegna umsýslu bankans eða til að afmarka þróunarverkefni. Fasteignir, lóðir eða félög utan um slíkar eignir eru settar í sölu eins fljótt og verða má eftir að bankinn eignast þær. Allar slíkar eignir eru til sölu hjá fasteignasölum eða hjá fullnustudeild Landsbankans, Hömlum hf. Að auki á Landsbankinn eignarhluta í nokkrum minni félögum. Til viðbótar við þetta vinnur bankinn að slitum á nokkrum félög þar sem engar eignir eða starfsemi er í gangi.
Mest lesið Stefna að því að opna deiliþjónustu bílferða fljótlega Atvinnulíf Þau keyptu fyrir tuttugu milljónir í útboðinu Viðskipti innlent Dómstóll ógilti tollahækkanir Trump Viðskipti erlent Shein ginni neytendur til skyndikaupa Viðskipti innlent Annar banki býður betra verð en hinn með sömu eigendur Viðskipti innlent ESB skammar Shein: Falskir afslættir og villandi upplýsingar Neytendur Birta lista yfir kaupendur: Á annað þúsund keypti fyrir tuttugu milljónir Viðskipti innlent Auður hefur innreið sína á húsnæðislánamarkað Viðskipti innlent „Þetta er ekki mjög töff en ég get ekki að þessu gert“ Atvinnulíf Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2025 - kosning Samstarf Fleiri fréttir Shein ginni neytendur til skyndikaupa Annar banki býður betra verð en hinn með sömu eigendur Þau keyptu fyrir tuttugu milljónir í útboðinu Sameining við Kviku banka mun taka langan tíma „Grindavíkuráhrifin“ leiða til talsverðrar hækkunar hjá nágrönnum Indó skoraði hæst í Sjálfbærniásnum Fasteignamat hækkar um 9,2 prósent á milli ára Bein útsending: Fasteignamat 2026 kynnt Verðbólga lækkar um 0,4 stig Kvika vinsælasta stelpan á ballinu Bein útsending: Viðurkenningarhátíð Sjálfbærniássins Auður hefur innreið sína á húsnæðislánamarkað Vextir lækka hjá Íslandsbanka Lokun kísilvers á Bakka: „Þetta er grátbölvað“ Arion vill sameinast Kviku Birta lista yfir kaupendur: Á annað þúsund keypti fyrir tuttugu milljónir Bein útsending: Ársfundur Samáls Vilja að stjórnvöld greiði leið kísilversins á Bakka Play tekur flugið til Agadir Halla nýr yfirlögfræðingur Emblu Medical Stöðva rekstur á Bakka í júlí og segja 80 manns upp störfum Heimar mega kaupa Grósku Tap útgerðarinnar vegna fjárfestinga í fiskeldi nemur milljörðum 4,5 milljarða hagnaður á fyrsta ársfjórðungi Kastrup og Jón Mýrdal hafa skilið skiptum Ráðin forstöðumaður söludeildar TVG-Zimsen Ný forysta Félags kvenna í atvinnulífinu kjörin Alcoa fellur frá þriggja milljarða króna skaðabótakröfu Högnuðust ríkulega en draga samt saman seglin í heimabyggð Íslendingar vongóðir um að finna heitt vatn á Tenerife Sjá meira