Viðskipti innlent

Latibær semur við Advania

Latibær ehf. hefur samið við Advania um prentrekstur í höfuðstöðvum fyrirtækisins í Garðabæ. Um er að ræða heildræna útvistun á umhverfisvottaðri prentþjónustu í samvinnu við Xerox. Samningurinn felur í sér að Latibær greiðir einungis fyrir prentuð eintök og sækir allan tækjabúnað, rekstrarvöru og þjónustu til Advania.

„Allir prentarar Latabæjar verða með aðgangsstýrðu prentkerfi sem stuðlar að auknu hagræði, betri yfirsýn og auknu gagnaöryggi. Aðgangsstýringin gerir alla útprentun þægilegri fyrir notendur þar sem þeir geta núna nálgast prentverk á hvaða tæki sem er innan fyrirtækjanetsins. Við teljum okkur vera í góðum höndum," segir Sigurður Stefánsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Latabæjar, í tilkynningu sem var sendur fjölmiðlum vegna samningsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×