Segir efnahag Skipta sterkan eftir breytingar 14. júní 2013 11:10 „
Efnahagur félagsins verður sterkur eftir þessar breytingar og með lækkun skulda mun fjármagnskostnaðurinn lækka verulega,“ segir Benedikt Sveinsson, formaður stjórnar Skipta hf en eins og fram kom í fréttum í morgun hafa Skipti hf. nú uppfyllt öll skilyrði sem sett voru fyrir fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins. Undirritaður hefur verið lánssamningur við Arion banka hf. að fjárhæð kr. 19 milljarðar og þá hefur félagið tekið á móti áskriftarloforðum frá fagfjárfestum að nýjum skuldabréfaflokki félagsins, að fjárhæð kr. 8 milljarðar. Samtals bárust áskriftarloforð fyrir tæpa 12 milljarða króna, sem er tæplega 50% umframeftirspurn, og verða áskriftarloforð skert hlutfallslega. „Stjórnendur og starfsfólk hafa unnið mjög gott starf í rekstri Skipta og dótturfélaga undanfarin misseri. Ég vil fyrir hönd stjórnar þakka þeim og öðrum sem hafa komið að málum, kærlega fyrir vel unnin störf,“ segir Benedikt í tilkynningu um málið. „Grunnurinn að því að unnt var að endurfjármagna félagið er sú bætta afkoma sem félagið hefur skilað að undanförnu. Reksturinn á fyrstu mánuðum þessa árs lofar góðu og endurfjármögnunin skýtur traustari stoðum undir reksturinn. Þá gengu Skipti og Síminn frá sátt við Samkeppniseftirlitið í mars á þessu ári og við bindum miklar vonir við að með henni skapist aukið traust og friður um starfsemi félagsins á fjarskiptamarkaði til framtíðar.“ Steinn Logi Björnsson, forstjóri Skipta hf. segir að það sé mikið ánægjuefni að hafa tryggt fjármögnun félagsins með farsælum hætti og þannig fullnægja síðasta skilyrðinu sem stóð í vegi fjárhagslegri endurskipulagningu Skipta hf. „Framundan eru spennandi tímar á fjarskiptamarkaði og við horfum nú björtum augum til framtíðar með öfluga nýja hluthafa um borð. Með endurfjármögnuninni og endurskipulagningunni eru Skipti hf. og dótturfélög í góðri stöðu til að skerpa á framtíðarstefnunni og vinna af krafti að því að þróa áfram bestu fjarskiptalausnirnar fyrir íslensk fyrirtæki og neytendur, sem gera miklar kröfur um úrvalsþjónustu og hagkvæmar lausnir,“ segir Steinn Logi.
Mest lesið Greiðsluáskorun Samstarf Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Viðskipti innlent Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Viðskipti innlent Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Neytendur Fjárfestingararmur Samherja bætir við sig í Högum Viðskipti innlent Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Samstarf Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Viðskipti innlent Fleiri fréttir Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Sjá meira