Skráð atvinnuleysi í maí var 4,3% 14. júní 2013 12:21
Skráð atvinnuleysi í maí var 4,3%, en að meðaltali voru 7.515 atvinnulausir í maí og fækkaði atvinnulausum um 483 að meðaltali frá apríl eða um 0,6 prósentustig. Skráð atvinnuleysi að meðaltali frá janúar til maí 2013 var 5,1%. Þetta kemur fram á vefsíðu Vinnumálastofnunnar. Þar segir að í maí fækkaði körlum um 395 að meðaltali en konum um 88 og var atvinnuleysið 3,8% meðal karla og 4,9% meðal kvenna. Atvinnulausum fækkaði að meðaltali um 229 á höfuðborgarsvæðinu en um 254 að meðaltali á landsbyggðinni. Atvinnuleysið var 4,8% á höfuðborgarsvæðinu og minnkaði úr 5,3% í apríl. Á landsbyggðinni var atvinnuleysið 3,5% og minnkaði úr 4,1% í apríl. Mest var atvinnuleysið á Suðurnesjum, 6,5%. Minnst var atvinnuleysið á Norðurlandi vestra, 1,6 %. Alls voru 7.837 manns atvinnulausir í lok maí. Þeir sem voru atvinnulausir að fullu voru hins vegar 7.026. Fjöldi þeirra sem hafa verið atvinnulausir lengur en 6 mánuði samfellt er nú 4.212, fækkar um 226 frá apríl og eru um 54% þeirra sem voru á atvinnuleysisskrá í maí. Fjöldi þeirra sem verið hafa atvinnulausir í meira en eitt ár samfellt var 2.236 í maílok, en 2.326 í apríllok og fækkar um 90 frá apríllokum. Alls voru 1.298 á aldrinum 16-24 ára atvinnulausir í lok maí eða um 17% allra atvinnulausra í maí. Í lok maí 2012 var fjöldi atvinnulausra ungmenna 1.544 og hefur því fækkað um 246 milli ára í þessum aldurshópi. Alls voru 1.440 erlendir ríkisborgarar án atvinnu í lok maí, þar af 810 Pólverjar eða um 56% þeirra útlendinga sem voru á skrá í lok mánaðarins. Flestir atvinnulausra erlendra ríkisborgara voru starfandi í gistingu – og veitingastarfsemi eða 205.
Mest lesið Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Framúrskarandi fyrirtæki Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Sjá meira