Spá samdrætti í fjárfestingum í sjávarútvegi á næstunni 25. mars 2013 10:33
Stjórnendur sjávarútvegsfyrirtækja spá því að fjárfesting dragist saman á næsta ári samkvæmt niðurstöðu könnunnar um framtíðarhorfur á Íslandi. Fjallað er um málið á vefsíðu LÍÚ. Þar kemur fram að langflestir þeirra telja að horfur séu á að ástandið í efnahagslífinu eigi ekki eftir að batna á næstu 6 mánuðum og telja að framlegð fyrirtækja muni dragast verulega saman á sama tíma. Einungis 11% sjá fram á fjölgun starfa. Könnunin er gerð árlega af Samtökum atvinnulífsins og Seðlabanka Íslands og snýst um mat stærstu fyrirtækja landsins á framtíðarhorfum á Íslandi. Í könnuninni kemur fram að 60% stjórnenda sjávarútvegsfyrirtækja telja að fjárfesting verði nokkuð eða miklu minni á árinu 2013 en árið á undan. Þar af telja 25,7% þeirra að fjárfesting verði miklu minni en 34,3% telja að hún verði nokkuð minni. 37,1% þeirra sem tóku þátt í könnuninni telja að fjárfestingar verði svipaðar árið 2013 og þær voru árið 2012 en aðeins 3% telja að fjárfestingar eigi eftir að aukast. Fjárfestingar í sjávarútvegi hafa síðustu ár minnkað verulega þrátt fyrir góða afkomu í greininni. Í slíku árferði ætti alla jafna að vera svigrúm til fjárfestinga en af henni hefur ekki orðið. Ástæðan er fyrst og fremst sú óvissa sem ríkt hefur í greininni bæði um skerðingar aflaheimilda sem og margföldun veiðigjaldsins sem mun gera litla fjárfestingu enn minni, að því er segir á vefsíðunni.
Mest lesið Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Icelandair ræður þrjá nýja stjórnendur til starfa Viðskipti innlent Sigga Lund lenti illa í „Vefstól Svanhildar“ og varar aðra við Neytendur Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Viðskipti innlent Frosti og Arnþrúður fá styrki Viðskipti innlent „Ég verð að segja að ég er svolítið hlessa“ Neytendur Fleiri fréttir Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Sjá meira