Financial Times: Íslensk hönnun hefur blómstrað í kreppunni 18. maí 2013 10:04 Tveir af hlutunum sem myndir eru af í greininni.
Financial Times hefur birt ítarlega grein á vefsíðu sinni um íslenska hönnun undanfarin ár. Segir blaðið að íslensk hönnun hafi blómstrað í kreppunni sem fylgdi í kjölfar bankahrunsins haustið 2008. Í greininni er m.a. rætt við Ágúst Einarsson hagfræðiprófessor við háskólann á Bifröst sem segir að það myndi ekki koma sér á óvart ef skapandi greinar á Íslandi yrðu stærsti einstaki þátturinn í landsframleiðslu landsins innan næstu 15 til 20 ára. Einnig er rætt við Höllu Helgadóttur forstjóra Iceland Design Center. Hún segir að kreppan hafi á vissan hátt komið íslenskum hönnuðum til góða. Þeir hafi þurft að vera hugvitssamari í hönnun sinni, nota innlent efni og það hafi virkað vel. Fram kemur í greininni að hönnun sé tiltölulega ný starfsgrein á Íslandi. Það hafi komið ungum íslenskum hönnuðum til góða að lítil sem engin hefð hefur verið til staðar á landinu hvað hönnun varðar á síðustu áratugum. Því hafi þessir íslensku hönnuðir skapað sinn eigin gáskafulla stíl þar sem efniviður sem þegar er til staðar á Íslandi er uppistaðan í verkum þeirra. Þannig megi nefna muni sem gerðir eru úr hrauni, ljósakrónur úr þurrkuðum fiski, stóla og húsgögn úr áli og veggflísar gerðar úr laxaroði svo dæmi séu tekin. Fjölmargar myndir af þessari íslensku hönnun fylgja með í greininni. Sjá nánar hér.
Mest lesið Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Neytendur Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Viðskipti innlent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Viðskipti innlent Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Viðskipti innlent Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Viðskipti innlent Innkalla vegna aðskotahlutar Neytendur Staðalímyndir meira vandamál en kynslóðamunur Atvinnulíf Feðgin í Firðinum: „Pabbi er besti vinur minn“ Atvinnulíf Icelandair tekur litáíska vél á leigu Viðskipti innlent Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Flugmenn og Icelandair funda á morgun Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Sjá meira