Orkuveitan skilar 3,7 milljarða hagnaði Haraldur Guðmundsson skrifar 29. ágúst 2013 16:08 Skuldir Orkuveitunnar lækkuðu um 21,3 milljarða á fyrstu sex mánuðum ársins.
Orkuveita Reykjavíkur skilaði 3,7 milljarða hagnaði á fyrstu sex mánuðum ársins samanborið við 924 milljón króna tap yfir sama tímabil í fyrra. Aðhald í rekstri fyrirtækisins er lykilatriði í bættri afkomu, segir í tilkynningu Orkuveitunnar um árshlutauppgjör fyrirtækisins. Þar segir að rekstrarhagnaður Orkuveitunnar fyrir fjármagnsliði (EBITDA) á fyrri hluta ársins 2013 nemi 8,9 milljörðum króna samanborið við 8,1 milljarð á sama tímabili 2012. Að auki nam framlegð reksturs samstæðu Orkuveitunnar 13,4 milljörðum króna en var 12,7 milljarðar á sama tímabili 2012. Rekstrarkostnaður fyrirtækisins lækkaði um 173 milljónir króna frá fyrra ári og skuldir þess um 21,3 milljarða. „Vegna þessa árangurs og staðfestu við að framfylgja Plani Orkuveitunnar og eigenda fyrirtækisins, hefur verið hægt að verja rekstur Orkuveitunnar fyrir sveiflum í ytri áhrifaþáttum með samningum við íslenskar og erlendar fjármálastofnanir. Heildarárangur Plansins á fyrri helmingi ársins 2013 nam 8,9 milljörðum króna, sem er 104 milljónum króna undir markmiði. Aðgerðaáætlunin, sem stjórn Orkuveitunnar og eigendur fyrirtækisins réðust í vorið 2011, hefur nú skilað fyrirtækinu 32,7 milljörðum króna betri sjóðsstöðu en verið hefði að óbreyttu. Sé litið til heildarárangurs Plansins frá upphafi er árangurinn af því samtals 2,0 milljarðar umfram markmið. Allir þættir eru á áætlun eða umfram hana nema sala eigna,“ segir í tilkynningu Orkuveitu Reykjavíkur.
Mest lesið Martraðarverktaki Kópavogsbæjar greiddi ekki krónu með gati Viðskipti innlent Ætlar að endurreisa Niceair Viðskipti innlent Ýmsar forsendur Hæstaréttar um skilmálann jákvæðar Viðskipti innlent Skilmálarnir skýrir og Arion banki sýknaður í vaxtamálinu Viðskipti innlent „Ég tel að þessi dómur hafi takmarkað fordæmisgildi“ Viðskipti innlent „Beindu skammbyssu að höfðinu á mér og sögðu: I will kill you“ Atvinnulíf Gengi Skaga tekur dýfu eftir tilkynningu Íslandsbanka Viðskipti innlent Steinþór aftur sviðsstjóri Orku hjá Eflu Viðskipti innlent Lofar að koma böndum á CNN Viðskipti erlent Sjónvarpseríur á samfélagsmiðlum og gjörbreytt notkun á Facebook og Instagram Atvinnulíf Fleiri fréttir Ýmsar forsendur Hæstaréttar um skilmálann jákvæðar „Ég tel að þessi dómur hafi takmarkað fordæmisgildi“ Skilmálarnir skýrir og Arion banki sýknaður í vaxtamálinu Martraðarverktaki Kópavogsbæjar greiddi ekki krónu með gati Ætlar að endurreisa Niceair Steinþór aftur sviðsstjóri Orku hjá Eflu DiBiasio og Beaudry til Genis Greiða tryggðar pakkaferðir úr Ferðatryggingasjóði eftir áramót Vaxtamálið: Niðurstaða um verðtryggðu lánin á morgun Kristín og Birta ráðnar til Origo Gengi Skaga tekur dýfu eftir tilkynningu Íslandsbanka Enn að rannsaka samráð í sorphirðu Hluthafar Íslandsbanka krefjast stjórnarkjörs Ferðamálastofa fellir úr gildi starfsleyfi Eagle golfferða Fjöldi erlendra farþega stendur í stað en Íslendingum fækkar Hulda nýr formaður Tækni- og hugverkaráðs SI Eldi verður eitt stærsta félag sinnar tegundar í heiminum Stærsti nóvembermánuður í sögu Icelandair Linda fer ekki fram til áframhaldandi stjórnarsetu Til Borealis Data Center eftir 22 ár hjá Össuri „Verðum að vona að þessi þróun haldi áfram“ Kaffi Ó-le opið á ný Hættir sem þjálfari kokkalandsliðsins Veiðigjald á þorski nánast tvöfaldað milli ára Ákvörðun um fjárhæð veiðigjalds seinni á ferðinni en venjulega Leggur til þrjár aðgerðir á ögurstundu fjölmiðla Áttatíu hafa sótt um nýju leiðina, Stefnir fagnar ákvörðun Seðlabankans Gervigreind á jólaísnum hafi komið á óvart Bein útsending: Orkan, álið og kísillinn Opnar útibú Forréttabarsins á kunnuglegum stað Sjá meira