Viðsnúningur á rekstri Advania í Noregi Lovísa Eiríksdóttir skrifar 29. ágúst 2013 16:45 Gagnaver Advania. Advania á Íslandi sinnir upplýsingatækni fyrir atvinnulífið og neytendur á sviði hug- og vélbúnaðar. Einnig rekur félagið hýsingu og gagnaver auk margvíslegrar rekstrarþjónustu.
Mikill viðsnúningur hefur orðið hjá Advania í Noregi eftir mjög erfiðan rekstur á síðasta ári, er fram kemur í hálfs árs uppgjöri félagsins. Hagnaður fyrir vexti, skatta og afskriftir nam 469 milljónum króna á fyrri hluta ársins samanborið við 486 milljóna króna tap á rekstir á sama tímabili í fyrra. Umskiptin má meðal annars rekja til 540 milljóna króna sölu á hugbúnaðarréttindum til stórs viðskiptavinar á tímabilinu, umfangsmikilla skipulagsbreytinga um síðustu áramót og hagræðingar í rekstri. Hagnaður Advania samstæðunnar nam 940 milljónum króna fyrir vexti, skatta og afskriftir á fyrri helmingi ársins samanborið við 48 milljónir króna á sama tímabili í fyrra. Heildartekjur fyrstu sex mánuðina námu 14.178 milljónum króna samanborið við 12.954 milljónir á fyrri helmingi síðasta árs og jukust því um 9,4%. Þegar tekið hefur verið tillit til fjármagnsliða og skatta nemur hagnaður af rekstri samstæðunnar á fyrri helmingi ársins 247 milljónum króna samanborið við 580 milljóna króna tap á sama tímabili árið 2012. Hjá Advania starfa um 1.100 starfsmenn í 20 starfsstöðvum á Íslandi, í Svíþjóð og í Noregi. Gestur G. Gestsson, forstjóri Advania, segir afkomu Advania í Noregi hafa haft mun meiri áhrif á niðurstöður samstæðunnar en umfang starfseminnar gefur tilefni til. „Rekstri í Noregi hefur verið snúið til betri vegar með markvissum aðgerðum. Jafnframt hefur hlutfall erlendra tekna af veltu á Íslandi vaxið talsvert á milli ára. Þetta skapar aukna breidd í tekjumynstri Advania á Íslandi. Í því felast tækifæri til vaxtar á þröngum heimamarkaði en rekstrarumhverfi í greininni hefur af ýmsum ástæðum verið erfitt á síðustu árum. Við getum því verið nokkuð sátt við afkomuna.“
Mest lesið Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Viðskipti innlent „Þetta er bara algjörlega galið“ Neytendur Fá dagsektir fyrir villandi verðskrá Neytendur Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Viðskipti innlent Skipta dekkin máli? Samstarf Algeng meiðsli fótboltamanna kveikjan að appinu sem hún þróaði Atvinnulíf Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ Viðskipti innlent Martraðarverktaki Kópavogsbæjar greiddi ekki krónu með gati Viðskipti innlent Auglýstu vörur á verði sem ekki stóð neytendum til boða Neytendur Auglýstu tilboð of títt og fá milljón í sekt Neytendur Fleiri fréttir Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ 15 ára afmæli kynjakvóta: „Langt frá því að vera fyrirmyndarríkið sem við teljum okkur vera“ Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Tekur við þjálfun kokkalandsliðsins Brú Talent kaupir Geko Consulting Halli hins opinbera minnkaði um 39 milljarða Spá aukinni verðbólgu um jólin Skatturinn endurgreiði áfram ofgreiddan skatt Bein útsending: Skattspor ferðaþjónustunnar Ýmsar forsendur Hæstaréttar um skilmálann jákvæðar „Ég tel að þessi dómur hafi takmarkað fordæmisgildi“ Skilmálarnir skýrir og Arion banki sýknaður í vaxtamálinu Martraðarverktaki Kópavogsbæjar greiddi ekki krónu með gati Ætlar að endurreisa Niceair Steinþór aftur sviðsstjóri Orku hjá Eflu DiBiasio og Beaudry til Genis Greiða tryggðar pakkaferðir úr Ferðatryggingasjóði eftir áramót Vaxtamálið: Niðurstaða um verðtryggðu lánin á morgun Kristín og Birta ráðnar til Origo Gengi Skaga tekur dýfu eftir tilkynningu Íslandsbanka Enn að rannsaka samráð í sorphirðu Hluthafar Íslandsbanka krefjast stjórnarkjörs Ferðamálastofa fellir úr gildi starfsleyfi Eagle golfferða Fjöldi erlendra farþega stendur í stað en Íslendingum fækkar Hulda nýr formaður Tækni- og hugverkaráðs SI Eldi verður eitt stærsta félag sinnar tegundar í heiminum Sjá meira